Fötluðu fólki nánast ókleift að nota almenningssamgöngur

Hreyfi­haml­aðir geta hvorki tekið strætó né flug­rút­una á Kefla­vík­ur­flug­völl og ferða­þjón­usta fatl­aðra fer ekki milli sveit­ar­fé­laga. Aðeins er gott aðgengi á einni stoppi­stöð strætó á lands­byggð­inni og aðeins er aðgengi fyrir hjóla­stóla á tveimur leiðum. Ekki er gert ráð fyrir sam­ráði við fatlað fólk í drögum að sam­göngu­á­ætlun.

Fötluðu fólki nánast ókleift að nota almenningssamgöngur
„Strætó segir það“ Stefán segir að þó Strætó segi að vagnar fyr­ir­tæk­is­ins séu aðgengi­legir fötl­uðu fólki sé reyndin sú að oft sé útbún­aður sem til þarf bil­aður eða ekki til staðar. Mynd: Heimildin Tómas

Aðeins ein af 168 bið­stöðvum strætó á lands­byggð­inni telst vera með gott aðgengi fyrir fatlað fólk.  Aðeins er hjóla­stóla­að­gengi í vögnum sem keyra á tveimur lands­byggð­ar­leiðum Strætó og meðal þeirra leiða þar sem ekki er slíkt aðgengi er leiðin út á Kefla­vík­ur­flug­völl, auk þess sem stoppi­stöð strætó er langt frá flug­stöð­inni. Þá er ekki heldur hjóla­stóla­að­gengi í Flug­rút­unni. Í drögum að nýrri sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda er ekki minnst sér­stak­lega á þarfir fatl­aðs fólks né heldur er til­greint að fatlað fólk skuli eiga aðkomu að stefnu­mótun og for­gangs­röðun í sam­göngu­málum.

Í umsögn Öryrkja­banda­lags Íslands (ÖBÍ) við drög að sam­göngu­á­ætlun eru gerðar fjöl­margar athuga­semdir, einkum að því er snýr að  aðgengi fatl­aðs fólks að almenn­ings­sam­göngum. Meðal þess sem þar kemur fram er að fleiri fatl­aðir ein­stak­lingar gætu nýtt sér almenn­ings­sam­göngur ef sam­göngu­tækin sjálf og bið­stöðvar væru aðgengi­legar. Því er hins vegar alls ekki að heilsa.

„Áætlun um að laga eldri bið­stöðvar er hins vegar stopp vegna fjár­hags­stöðu borg­ar­innar“
Stefán Vil­bergs­son
verk­efna­stjóri hjá ÖBÍ

Í skýrslu sem VSÓ ráð­gjöf vann fyrir ÖBÍ og var birt í októ­ber í fyrra kemur fram, sem fyrr segir, að aðeins ein bið­stöð Strætó á lands­byggð­inni telj­ist hafa gott aðgengi fyrir fatlað fólk. Í sömu skýrslu segir að árið 2020 hafi Reykja­vík­ur­borg gert úttekt á bið­stöðvum innan borg­ar­innar, en þær eru 556 tals­ins, þar af 375 með bið­skýli. Nið­ur­staðan var sú að aðeins fjórar stöðvar væru með gott aðgengi og ell­efu með gott eða mjög gott yfir­borð. „Í kjöl­farið var gerð áætlun um upp­bygg­ingu þeirra og nýjar bið­stöðvar hafa verið ágæt­lega aðgengi­legar. Áætlun um að laga eldri bið­stöðvar er hins vegar stopp vegna fjár­hags­stöðu borg­ar­innar,“ segir Stefán Vil­bergs­son, verk­efna­stjóri hjá ÖBÍ. Óljóst er hversu margar bið­stöðvar eru nú aðgengi­legar í borg­inni en ljóst er að þær eru fjarri því að vera meiri­hlut­inn.

Ryðgað og bilað í Strætó

Þá er málum blandið hvort stræt­is­vagnar Strætó séu aðgengi­legir, þó slíkt sé skylt, lögum sam­kvæmt.  „Sko, Strætó segir það. Við hins vegar fórum í að skoða, í sam­starfi við Strætó, hversu aðgengi­legir vagn­arnir eru og hversu aðgengi­legar bið­stöðvar eru. Þessir vagnar eiga vissu­lega að vera aðgengi­legir, það eru hlerar sem á að vera hægt að lyfta út fyrir far­þega í hjóla­stól og það er svæði þar sem á að vera hægt að festa stól­ana með bakið í akst­ur­sátt. En það má segja að bæði Strætó og fatlað fólk hafi í fjölda ára eig­in­lega ekki áttað sig á því að þetta væri raun­hæfur ferða­máti fyrir hreyfi­haml­aða, þá var ástandið á þessum vögnum alls konar. Einn vagn sem við skoð­uðum hjá þeim, í honum var hler­inn bara ryðg­aður fastur við gólfið. Beltin sem á að nota til að festa hjóla­stóla voru þá í mörgum til­fellum biluð eða of stutt,“ segir Stefán enn fremur.

„Þú stekkur ekki til ef þú áttar þig á því að það er bæj­ar­há­tíð á Selfossi í dag sem þig langar á“
Stefán Vil­bergs­son
verk­efna­stjóri hjá ÖBÍ

Akstur lands­byggð­ar­strætós er á for­ræði Vega­gerð­ar­innar, sem tók við rekstr­inum árið 2019,  og var akstur á leiðum boð­inn út. ÖBÍ benti sér­stak­lega á við það tæki­færi að tryggja þyrfti aðgengi í vagn­ana en reyndin er önnur. Að sögn Stefáns eru aðeins tvær leiðir þar sem vagnar með hjóla­stóla­lyftu keyra, milli Reykja­víkur og Akur­eyrar, og milli Reykja­víkur og Selfoss. Þá þarf fatlað fólk að láta vita af því að það hygg­ist nýta sér þjón­ust­una með að minnsta kosti sól­ar­hrings fyr­ir­vara. „Þú stekkur ekki til ef þú áttar þig á því að það er bæj­ar­há­tíð á Selfossi í dag sem þig langar á. Svo er hitt að allar bið­stöðv­arnar hafa verið óað­gengi­legar, svo mögu­lega hugs­uðu menn að það sé ekki þörf á því að vera með aðgengi­lega vagna ef ekki er hægt að setja út lyft­una. Á móti hafi fólk svo hugsað að það væri engin þörf á því að hafa aðgengi­legar bið­stöðvar ef vagn­arnir eru ekki aðgengi­legir. Þannig að þetta bítur bara í skottið á sér.“

Ekkert verið lagað

Engin bið­stöð á lands­byggð­inni hefur verið löguð frá því að ÖBÍ birti skýrslu sína í fyrra, svo enn eru 167 þeirra óað­gengi­legar hreyfi­höml­uðu fólki. Í drögum að sam­göngu­á­ætlun, aðgerð­ar­á­ætlun áranna 2024 til 2028, er til­greint að mótuð verði upp­bygg­ing­ar­á­ætlun um bætt aðgengi fatl­aðs fólks að kerfi almenn­ings­sam­gangna og meðal ann­ars horft til skýrslu ÖBÍ. Stefán segir það gott og blessað en hefur allan vara á sér samt. „Samkvæmt fyrri lof­orðum eiga 90 pró­sent bið­stöðva að verða aðgengi­legar fyrir lok árs 2024 en ég sé það ekki ger­ast. Það hefur engin bið­stöð verið löguð frá því að við birtum skýrsl­una, það hefur ekk­ert fjár­magn feng­ist til þess. Það er þó von­andi að það fylgi fjár­magn þess­ari sam­göngu­á­ætlun, ann­ars eru þetta bara orðin tóm eins og svo oft hefur verið.“

Ófært út á flugvöll

Í umsögn ÖBÍ er bent á að þegar rekstur flug­rútu til Kefla­vík­ur­flug­vallar var boðin út síð­ast hafi ekki verið gerð krafa um aðgengi fatl­aðs fólks, þrátt fyrir skyldu þar um að lögum. Stræt­is­vagnar sem gangi á flug­völl­inn séu óað­gengi­legir og bið­stöð sé langt frá flug­stöðv­ar­inn­gang­inum, illa merkt og umferð­ar­leið sé ekki greið­fær. „Akst­urs­þjón­usta fatl­aðra keyrir ekki milli sveit­ar­fé­laga og nán­ast ómögu­legt er að fá leigu­bíl með hjóla­stóla­að­gengi. Val­mögu­leikar hreyfi­haml­aðs fólks eru því bundnir við einka­bíl­inn,“ segir í umsögn­inni.

Stefán bendir einnig á að hingað til lands komi mik­ill fjöldi ferða­fólks árlega, sumt hvert fatlað fólk. „Það gefur sér kannski að það kom­ist til Reykja­víkur af því að í öllum öðrum vest­rænum löndum má ganga að því að hreyfi­haml­aðir kom­ist leiðar sinnar. En hér er það ekki svo. Ég held að við verðum að horfast í augu við það að Ísland er kannski ekki land sem verður oft fyrir val­inu til ferða­laga fyrir hreyfi­hamlað fólk."

„Ekki talað um aðkomu fatl­aðs fólks að stefnu­mótun og for­gangs­röðun í sam­göngu­málum“
úr umsögn ÖBÍ um drög að sam­göngu­á­ætlun

Í umsögn ÖBÍ er einnig bent á að fatlað fólk sér sér­stak­lega háð því að tekið sé til­lit til þess við upp­bygg­ingu og rekstur sam­göngu­kerfa. „Í kafla II í sam­göngu­á­ætlun er lögð áhersla á þarfir barna og ung­menna og mis­mun­andi áskor­anir kynja í sam­göngum en ekki er minnst á sér­stak­lega skuli taka mið af þörfum fatl­aðs fólks. Í 5. lið er ítrekað að tryggð verði aðkoma barna og ung­menna sem og jafn­rétt­is­sjón­ar­miða (sem almennt er sett í sam­hengi við kynja­jafn­rétti), en ekki talað um aðkomu fatl­aðs fólks að stefnu­mótun og for­gangs­röðun í sam­göngu­málum,“ segir í umsögn­inni. Setur ÖBÍ það í sam­hengi við þá stað­reynd að Ísland hefur full­gilt samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks þar sem til­greint er sér­stak­lega að náið sam­ráð skuli haft við fatlað fólk, með milli­göngu sam­taka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár