Alvotech í kröppum dansi en aflar 13 milljarða með útboði

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Alvotech hefur aflað sér ríf­lega 13 millj­arða króna með úboði á breyt­an­legum skulda­bréfum. Virði félags­ins hefur hríð­fallið frá 13. apríl þegar því var fyrst synjað um mark­aðs­leyfi fyrir hlið­stæðu­lyf í Banda­ríkj­unum.

Alvotech í kröppum dansi en aflar 13 milljarða með útboði
Sækja pen­inga eftir tap Mikið tap hefur verið á rekstri Alvotech og þá hefur virði félags­ins hríð­fallið einnig. Róbert Wessman er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Alvotech hefur aflað sé rúmra 13 millj­arða króna með sölu á breyt­an­legum skulda­bréfum á inn­an­lands­mark­aði. Útboðið á bréf­unum, sem var lokað og beint að hæfum fjár­festum á Íslandi, er enn ein aðgerðin sem fyr­ir­tækið hefur ráð­ist í til að afla sér fjár á und­an­förnum mán­uðum og miss­erum. Þær aðgerðir hafa reynst nauð­syn­legar sökum þess að frá apríl síð­ast­liðnum, eftir að mark­aðs­leyfi fyrir hlið­stæðu­lyf fyr­ir­tæk­ins í Banda­ríkj­unum var synjað. Síðan þá hefur virði félags­ins hríð­fallið.

Lyfið sem Alvotech hefur sett allt, eða í það minnsta mest, traust sitt á að myndi fleyta því áfram inn á banda­rískan markað og þar með stór­auka tekjur fyr­ir­tæk­is­ins, heitir því þjála nafni AVT02 og er hlið­stæðu­lyf líf­tækni­gigt­ar­lyfs­ins Humira. Humira er mest selda lyf í heimi og því til mik­ils að vinna fyrir Alvotech að verða fyrst lyfja- og líf­tækni­fyr­ir­tækja til að mark­aðs­setja hlið­stæðu lyfs­ins í Banda­ríkj­unum. Þegar hefur feng­ist sam­þykkt mark­aðs­leyfi fyrir lyfið í Kanada og í Evrópu en Banda­ríkja­mark­aður er hins vegar lang­verð­mæt­asti mark­aður heims með lyf og því er það þess mik­il­væg­ara fyrir Alvotech að koma lyf­inu á markað þar.

Fengu nei

Í mars á síð­asta ári fór fram úttekt á fram­leiðslu lyfs­ins af hálfu banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins sem gerði allt í allt þrettán athuga­semdir við aðstöðu fyr­ir­tæk­is­ins í Vatns­mýri. Engu að síður voru stjórn­endur Alvotech brattir, skráðu fyr­ir­tækið á markað hér og vestan hafs með góðum árangri. Í des­em­ber á síð­asta ári hækk­aði virði fyr­ir­tæk­is­ins gríð­ar­lega, mest eftir að Alvotech hafði til­kynnt það 22. des­em­ber að banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefði stað­fest að kröfur um útskipti­leika lyfs­ins við Humira væru upp­fylltar og að boð­aði að ákvörðun um veit­ingu mark­aðs­leyfis myndi liggja fyrir 13. apríl. Þann dag hækk­uðu hluta­bréf Alvotech um 30 pró­sent.

Í jan­úar síð­ast­liðnum sótti Alvotech sér 19,5 millj­arða króna í nýtt hlutafé frá inn­lendum fjár­festum, líf­eyr­is­sjóðum, trygg­inga­fé­lögum, verð­bréfa­sjóðum og einka­fjár­festum. Þá keyptu inn­lendir fjár­festar einnig breyt­an­leg skulda­bréf þá, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar, fyrir yfir 20 millj­arða króna.

Rekið með gengdarlausu tapi

En hvers vegna þurfti fyr­ir­tæki sem hafði hækkað gríð­ar­lega í verði á einum mán­uði og var, að því er stjórn­andi þess, Róbert Wessman, sagði með pálmann í hönd­unum, að sækja sér 40 millj­arða í aukið fé í jan­úar síð­ast­liðnum. Ástæðan var því sem næst gengd­ar­laust tap fyr­ir­tæk­is­ins á síð­asta ári, um 70 millj­arðar króna. Rekstur félags­ins var því í full­komnu upp­námi nema að til kæmi inn­spýt­ing.

Svo rann upp 13. apríl, dag­ur­inn sem beðið hafði verið eftir. En tíð­indin urðu ekki þau sem vænst hafði verið. Banda­ríska lyfja­eft­ir­litið til­kynnti að ekki væri hægt að veita mark­aðs­leyfi fyrir AVT02. Og hluta­bréfa­virði Alvotech hrundi. Á fjórum dögum þurrk­uð­ust út 170 millj­arðar króna af mark­aðsvirði Alvotech.

Synjað á nýjan leik

Alvotech sótti aftur um mark­aðs­leyfi fyrir lyfið en allt kom fyrir ekki því 28. júní síð­ast­lið­inn til­kynnti fyr­ir­tækið Kauphöll að umsókn­inni hefði verið hafnað að nýju. Í til­kynn­ing­unni kom fram að enn ætti að sækja um mark­aðs­leyfi fyrir lyfið og bæri banda­ríska lyfja­eft­ir­lit­inu að afgreiða þá umsókn innan hálfs árs. Vegna þessa hyggð­ist Alvotech hefja að nýju und­ir­bún­ing til fjár­mögn­unar sem fleytt gæti fyr­ir­tæk­inu áfram næstu mán­uði.

Og það er það sem fyr­ir­tækið er nú að gera, með söl­unni á breyt­an­legu skulda­bréf­unum. Inn­lendir aðilar keyptu skulda­bréf fyrir um 9,2 millj­arða króna en ATP Holdings ehf hafði skuld­bundið sig til að kaupa bréf að and­virði 5 millj­arða til við­bótar, sam­tals 13,2 millj­arða. ATP Holdings er að 92 pró­sentum í eigu Róberts Wessmans í gegnum sænska félagið Alvogen Aztiq AB.

Hversu lengi Alvotech getur rekið sig með umræddum fjár­munum er óljóst og allt eins lík­legt er að enn þurfi að afla meira fjár. Enn hefur ekk­ert heyrst af við­brögðum lyfja­eft­ir­lits­ins banda­ríska við nýrri umsókn fyr­ir­tæk­is­ins um mark­aðs­leyfi.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Skemmtilegar fléttur en stór spurning um lögmætið og fróðlegt að fylgjast með málaferlum sem Weissman og félagar gera lítið úr
    0
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Er nú verið að nota lífeyrissjóðina til þess að skeina þennan gosa?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár