Töpuðu 70 milljörðum en borguðu forstjóranum 300 milljónir í laun og starfslokakostnað

Alvotech tap­aði næstum 70 millj­örðum króna í fyrra og átti laust fé upp á 9,5 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Íslenskir fjár­festar, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðir, keyptu í félag­inu fyrr á þessu ári. Stjórn­un­ar­kostn­aður Alvotech á árinu 2022 var 25,3 millj­arðar króna í fyrra en tekjur félags­ins voru 11,5 millj­arðar króna. Þær dugðu því fyrir tæp­lega helm­ingnum af stjórn­un­ar­kostn­að­inum. Róbert Wessman fékk 100 millj­ónir króna í laun sem stjórn­ar­for­maður.

Töpuðu 70 milljörðum en borguðu forstjóranum 300 milljónir í laun og starfslokakostnað
100 millj­ónir Róbert Wessman tók nýverið við sem for­stjóri Alvotech af Mark Levick. Róbert fékk 100 millj­ónir króna í laun í fyrra sem stjórn­ar­for­maður. Hann gegnir nú bæði stöðu for­stjóra og stjórn­ar­for­manns. Mynd: Alvogen

Alvotech tap­aði 513,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala á síð­asta ári, eða 69,6 millj­örðum króna ef miðað er við með­al­gengi Banda­ríkja­dals á árinu 2022 en félagið gerir upp í þeirri mynt. Tapið jókst gríð­ar­lega milli ára, en það var 101,5 milljón Banda­ríkja­dala, 12,9 millj­arðar króna, á árinu 2021 miðað við með­al­gengi Banda­ríkja­dals á því ári. 

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Alvotech sem birtur var í gær­kvöldi. 

Langstærsti hluti taps­ins kom fram á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2022, en Alvotech tap­aði 28 millj­­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022.

Þar segir að í lok síð­asta árs hafi félagið átt 66,4 millj­ónir dala, um 9,5 millj­arða króna miðað við árs­loka­gengi Banda­ríkja­dals, í lausu fé. Án frek­ari fjár­mögn­unar hefði Alvotech því ekki átt aðgengi­lega fjár­muni til að starfa lengi á árinu 2023. Félagið hefur hins vegar verið dug­legt að sækja sér slíka fjár­muni á und­an­förnum mán­uðum og hefur áform um að skila hagn­aði á síð­ari …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár