For­stjór­inn Róbert Wessman er for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alvotech og fer fyrir stærsta eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Alvogen

Það sem þótti „mjög ólíklegt“ gerðist og 160 milljarðar þurrkuðust út

Alvotech ætl­aði sér að verða ný stoð undir íslenskt efna­hags­líf og að útflutn­ings­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins yrðu um fimmt­ungur af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu Íslands. Til þess að ná því mark­miði þurfti Alvotech að fá mark­aðs­leyfi fyrir hlið­stæðu mest selda lyfs Banda­ríkj­anna þar í landi. Því var synjað, að minnsta kosti tíma­bundið, 13. apríl síð­ast­lið­inn. Frá þeim tíma hefur virði Alvotech hríð­fallið og mikil óvissa ríkir um fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins.

Í febr­úar 2021 fór Róbert Wessman í við­tal við Kast­ljósið á RÚV og ræddi mögu­leika Alvotech, fyr­ir­tækis sem fram­leiðir líf­tækni­hlið­stæður og hann fer fyrir. Í við­tal­inu sagði Róbert frá því að Alvotech hefði sent inn til skrán­ingar í Banda­ríkj­unum hlið­stæðu líf­tækni­gigt­ar­lyfs­ins Humira, sem er mest selda lyf í heimi. Lyfið, AVT02, yrði fram­leitt í verk­smiðju Alvotech í Vatns­mýr­inni og sam­kvæmt Róberti stefndi í að útflutn­ings­tekjur Alvotech myndu nema um 20 pró­sent vergrar lands­fram­leiðslu Íslands í ekki svo fjar­lægri fram­tíð.

Verg lands­fram­leiðsla á Íslandi í fyrra var áætluð 3.766 millj­arðar króna. Ef spá Róberts myndi ganga eftir ættu útflutn­ings­tekj­urnar sem Alvotech gætu skapað því að nema um 750 millj­örðum króna á ári 2026-2027. Þá mætti búast við að Alvotech myndi skila 15-20 millj­örðum króna í skatta og skyldur á Íslandi. Í raun yrði Alvotech, ein og sér, ný stoð undir íslenskan efna­hag. 

Töldu sig vera með forskot …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár