Listin að svíkja

Amanda Riley er að deyja. En hún á leynd­ar­mál, leynd­ar­mál sem hún ætlar að taka með sér í gröf­ina. Eða er hún kannski ekki á leið­inni þangað?

Listin að svíkja

„Lifðu líf­inu líkt og hver dagur sé þinn síð­asti. Lærðu líkt og þú lifir að eilífu.“ Þessa lífs­speki til­eink­aði 17 ára Amanda Riley sér við útskrift úr mennta­skóla, en til­vitn­un­ina má finna við mynd af henni í árbók­inni. Um tíu árum seinna var hún orðin eig­in­kona og móðir í Kali­forníu sem fer reglu­lega í kirkju. Hún er félags­lynd og bloggar um lífið og til­ver­una. En dagar hennar verða brátt taldir. Hún er með 4. stigs krabba­mein og fjallar ítar­lega um það á blogg­inu sínu. 

Eða hvað? Í hlað­varp­inu Scamanda er fjallað um blekk­ing­ar­leik og stór­felld fjár­svik Amöndu. Það er óþarfi að gefa of mikið upp um í hverju svikin fel­ast nákvæm­lega, það skýrist fljótt við fyrstu hlustun. Rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn Charlie Webster varði fimm árum í að skoða mál Amöndu. Í þátt­unum rýnir hún í blogg­færslur hennar, krafta­verka­barnið sem átti að sigra krabba­meinið, að ógleymdri bón­us­dótt­ur­inni. Einnig er rætt við sam­ferða­fólk hennar sem lýsir henni meðal ann­ars sem „ótrú­lega trú­verð­ugri“. 

Svik og prettir virð­ast falla vel í kramið um þessar mundir en Scamanda er dæmi um fjöl­mörg hlað­vörp þar sem ein­hvers konar svik gegna stóru hlut­verki. Þar er vert að minn­ast á The Dropout, Believe in Magic og A very British Cult. Scamanda gefur þeim lítið eftir og það er því til­valið að hafa svik sem þema í hlað­varps­hlustun sum­ars­ins. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár