Klukkutími í dýrustu stæðum borgarinnar mun kosta 600 krónur

Hækkanir á bíla­stæða­gjöldum á dýrasta gjald­skyldu­svæð­inu hafa verið sam­þykktar af borg­ar­ráði. Rukkað verður til kl. 21 á kvöldin á svæðum P1 og P2 og sömu­leiðis verður ekki lengur frítt að leggja á sunnu­dögum.

Klukkutími í dýrustu stæðum borgarinnar mun kosta 600 krónur
Bíla­stæði Meiri­hlut­inn í borg­inni hefur ákveðið að hækka gjöld á gjald­skyldu­svæði P1 og lengja þann tíma sem rukkað er fyrir stæðin fram til kl. 21 á kvöldin. Mynd: Davíð Þór

Ýmsar breyt­ingar á bíla­stæða­gjöldum mið­svæðis í borg­inni voru sam­þykktar í borg­ar­ráði í dag. Bæði er verið að hækka verð á dýrasta gjald­skyldu­svæð­inu og lengja þann tíma sem rukkað er fyrir bíla­stæði á svæðum P1 og P2.

Þær breyt­ingar sem voru sam­þykktar er að gjaldið á svæði P1 verði hækkað úr 430 krónum upp í 600 krónur og sömu­leiðis var sam­þykkt að hámarks­tími í þeim stæðum yrði þrjár klukku­stundir.

Að auki var sam­þykkt að gjald­skyldu­tím­inn á svæðum P1 og P2, þar sem kostar 220 krónur að leggja í eina klukku­stund, yrði lengdur þar til klukkan 21 á kvöldin á virkum dögum og laug­ar­dögum. 

Einnig verður gjald­skylda á þessum svæðum tekin upp á sunnu­dögum, á milli kl. 10 og 21, en hingað til hefur verið frítt að leggja bíl á borg­ar­stæðum við götur í mið­borg­inni alla sunnu­daga.

Á móti þessum hækk­unum kemur að ekki verður lengur gjald­skylda á gjald­svæði P3 á laug­ar­dögum, en þar hefur til þessa verið rukkað á milli kl. 10 og 16 á laug­ar­dögum. 

Verðin taka fram úr Árósum en standa Köben langt að baki

Heim­ildin ákvað að ráð­ast í smá sam­an­burð á verði bíla­stæða í Reykja­vík og tveimur helstu borgum Dan­merkur.

Með þessum hækk­unum á gjald­skránni á dýrasta bíla­stæða­svæð­inu í Reykja­vík­ur­borg tekur borgin fram úr Árósum, næst­stærstu borg Dan­merkur, hvað verð á bíla­stæðum á dýrasta gjald­skyldu­svæð­inu varðar.

Þar kostar 22 danskar krónur, jafn­virði 441 íslenskra króna, að leggja bíl í eina klukku­stund á milli kl. 8-19 á virkum dögum og laug­ar­daga, en lægra gjald er á kvöldin. Þar er einnig rukkað á sunnu­dögum, en þá er gjaldið ein­ungis 5 danskar krónur á klukku­stund, eða um 100 krónur íslenskar.

Hins vegar verður áfram tals­vert dýr­ara að leggja bíl í hjarta Kaup­manna­hafnar en í hjarta Reykja­víkur, þrátt fyrir þær hækk­anir sem hafa verið sam­þykktar. Í Kaup­manna­höfn kostar ein klukku­stund á dýrasta gjald­svæð­inu 41 danska krónu, jafn­virði 823 íslenskra króna á gengi dags­ins í dag, en verðið á kvöldin frá 18-23 jafn­gildir 321 íslenskri krónu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár