Alvarleiki brotanna og stærð bankans vega þungt

Þegar fyr­ir­tæki eða stofn­anir ganga til sátta við Fjár­mála­eft­ir­litið getur það verið til marks um að sá sem gerð­ist brot­legur við lögin fái afslátt af sekt­ar­greiðslu. Íslands­banki ætlar að ganga til sátta við eft­ir­litið og greiða fyrir þá sátt sögu­lega háa upp­hæð: 1,2 millj­arð króna.

Alvarleiki brotanna og stærð bankans vega þungt
Íslands­banki Bankinn hefur ekki skrifað undir sátt­ina en til­kynnti í gær að það væri ætl­unin. Í til­kynn­ing­unni sagði að bank­inn geng­ist við því að hafa brotið gegn „til­teknum ákvæðum“ laga um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga og laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, sést hér hringja inn við­skipti í Kauphöll Íslands árið 2021 þegar bank­inn var skráður á aðal­markað Nasdaq Iceland. Mynd: Nasdaq Ísland

Íslands­banki sendi í gær­kvöldi frá sér til­kynn­ingu um fyr­ir­hug­aða sátt við Fjár­mála­eft­ir­litið vegna brota bank­ans við sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum. Sátt­ar­greiðslan hljóðar upp á 1,2 millj­arð króna og er sú lang­hæsta í sög­unni. Fyrra met átti Arion Banki árið 2020 en það var 88 millj­ónir króna. 

DósentAndri Fannar Berg­þórs­son.

Andri Fannar Berg­þórs­son, dós­ent við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, segir að sektin sé lík­lega svo há vegna alvar­leika brota Íslands­banka. Við það bæt­ist heim­ild í lögum til þess að miða við allt að 10% af heild­ar­veltu félags.

„Ef þetta hefði verið eitt­hvað lítið verð­bréfa­fyr­ir­tæki með sam­bæri­leg brot þá hefði sektin alls ekki verið jafn há. Stærð fyr­ir­tæk­is­ins skiptir mjög miklu máli,“ segir Andri.

Árið 2007 var Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) heim­ilað að ljúka málum með sátt, þ.e. með því að eft­ir­litið byði aðila sem það taldi brot­legan við lög …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár