Leynd yfir styrkjum laxeldisfyrirtækja til menntaskólanáms

Fyr­ir­hugað er að bjóða upp á nýja náms­braut í sjáv­ar­út­vegi í fimm mennta- og fjöl­brauta­skólum á lands­byggð­inni. Þrjú lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Vest­fjörðum fjár­magna skipu­lagn­ingu náms­ins. Skóla­meist­ari Mennta­skól­ans á Ísafirði, Heiðrún Tryggva­dóttir, segir að hún hafi heyrt gagn­rýn­is­raddir um þessa aðkomu fyr­ir­tækj­anna en að um sé að ræða jákvæða þróun þar sem þetta sé hag­nýtt nám sem snú­ist bæði um hag­nýt­ingu sjáv­ar­ins og einnig nátt­úru­vernd.

Leynd yfir styrkjum laxeldisfyrirtækja til menntaskólanáms
Lax­eld­is­fyr­ir­tæki í eigu útgerð­ar­fé­lags Eitt af lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum sem styrkir nýja námið í Mennta­skól­anum á Ísafirði er lax­eld­is­fyr­ir­tækið Háfell sem er eígu útgerð­ar­fé­lags­ins Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar. Útgerðin er sú stærsta á Ísafirði. Fram­kvæmda­stjóri Gunn­varar er Einar Valur Krist­jáns­son. Mynd: mbl/Halldór Sveinbjörns

Þrjú lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Vest­fjörðum styrkja nýtt nám við Mennta­skól­ann á Ísafirði og í fimm öðrum mennta- og fram­halds­skólum á lands­byggð­inni sem snýst um nýt­ingu sjáv­ar­af­urða, meðal ann­ars lax­eldi. „Við leit­uðum til þriggja fyr­ir­tækja í okkar nærum­hverfi. Þetta eru Arnarlax á Bíldudal, Arctic Fish og Háafell á Ísafirði,“ segir skóla­meist­ari mennta­skól­ans, Heiðrún Tryggva­dóttir. Tvö fyrr­nefndu fyr­ir­tækin, Arnarlax og Arctic Fish, eru í meiri­hluta­eigu stórra norskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja, Salmar AS og Mowi. Síð­a­stefnda fyr­ir­tækið, Háafell, er í eigu stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins á Ísafirði, Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar, sem er í eigu íslenskra aðila.

Vinna við skipu­lagn­ingu náms­ins stendur nú yfir og er það Mennta­skól­inn á Ísafirði sem leiðir þá vinnu. Um er að ræða sam­starfs­verk­efni á milli fimm mennta­skóla á lands­byggð­inni: á Ísafirði, Vest­manna­eyjum, Snæ­fellsbæ, Norð­firði og Sauð­ár­króki. Vinna við skipu­lagn­ingu náms­ins er ekki það langt komin að hægt verði að bjóða upp á það strax í haust. Samn­ing­ur­inn um skipu­lagn­ingu náms­ins og fjár­stuðn­ing lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Afhverju er fíflum treyst fyrir menntun?!
    Hér ef verið að taka peninga frá fyrirtækjum sem taka enga ábyrgð á náttúruspjöllum og nota þá til að ala upp framtíðar starfsmenn í því sama. Afhverju er “ríkið” að taka þátt í þessum “heila þvotti”?! Þetta er siðlaust. Hvað næst? Bændasamtökin að fjármagna kennslu í að drekka meiri mjólk?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár