Bensínverðið stendur í stað þó líklegt innkaupaverð hækki ögn

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni stendur í stað á milli mán­aða, sam­kvæmt bens­íns­vakt Heim­ild­ar­innar fyrir júní. Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra lækkar á milli mán­aða, niður í 17,9 pró­sent af útsölu­verð­inu.

Bensínverðið stendur í stað þó líklegt innkaupaverð hækki ögn
Bens­ín­verð Við­mið­un­ar­verð á bens­íni er 307,9 krónur í júní, sam­kvæmt bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni í júní er það sama og það var í maí, eða 307,9 krónur á lítr­ann, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr nýrri bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar, en upp­lýs­ing­arnar voru teknar saman um miðjan mán­uð­inn.

Líklegt inn­kaupa­verð á bens­íni, sem tekur einkum mið af stöðu heims­mark­aðs­verðs olíu og gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal, hækkar ögn á milli mán­aða og fer upp í 96,87 krónur.

Hlutur olíu­fé­laga af hverjum seldum bens­ín­lítra lækkar ögn á móti, niður í 55,13 krónur á lítr­ann, sem sam­svarar 17,9 pró­sentum af verði bens­ín­lítrans. Inni í þeirri tölu er bæði kostn­aður olíu­fé­laga við flutn­inga og trygg­ingar og sú álagn­ing sem lögð er á bens­ín­lítr­ann af hálfu olíu­fé­lag­anna. 

Ríkið tekur til sín 155,89 krónur af hverjum seldum lítra af bens­íni í virð­is­auka­skatt, almennt bens­ín­gjald, sér­stakt bens­ín­gjald og kolefn­is­gjald. Það fara því rúm 50,6 pró­sent af því sem neyt­end­inn greiðir

Lítrinn síðast undir 300 krónum að jafnaði í apríl 2022

Við­mið­un­ar­verðið á bens­íni hefur verið yfir 300 krónum á hvern lítra allt frá því í maí í fyrra. Hæst fór það í júní og júlí á síð­asta ári, en þá var bens­ín­verðið um og yfir 340 krónur á hvern lítra. Það hefur farið hægt lækk­andi und­an­farna mán­uði.

Á meðan dýr­tíðin við dæl­urnar var sem mest síð­asta sumar lækk­aði hlutur olíu­fé­lag­anna af hverjum seldum bens­ín­lítra tölu­vert, eða niður í allt að 10,2 pró­sent í maí í fyrra. Það sem af er þessu ári hefur hlutur olíu­fé­lag­anna hins vegar oft­ast verið hátt í eða yfir 20 pró­sent, sam­kvæmt bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar.

Allt að 33,3 króna munur á bensínlítranum

Nokkru getur munað um það hvar bensín er keypt. Samkvæmt upp­lýs­ingum af vefnum bens­in­verd.is er allt að 33,3 króna munur á almennu útsölu­verði á einum lítra á bens­íni í dag, en vert er að taka fram að Costco, sem býður með­limum sínum upp á ódýrasta bens­ínið, er ekki með í þeim sam­an­burði.

Þar sem bens­ínið er ódýr­ast hjá olíu­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kostar það 283,6 krónur á líter en þar sem það er dýr­ast er verðið á einum lítra 316,9 krónur. Minni verð­munur er á dísel­drop­anum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kostar ódýr­asti líter­inn 287,6 krónur en sá dýr­asti 311,2 krónur.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár