Konur og kyngjörningar – og krafan um hina hreinu náttúrulegu konu

Berglind Rós Magn­ús­dóttir rýnir í við­mið um nátt­úru­lega hreina konu og veltir fyrir sér kyn­gjörn­ingum kvenna.

Konur og kyngjörningar  – og krafan um hina hreinu náttúrulegu konu
Pillan Getn­að­ar­varn­arpillan var þróuð með það í huga að líkja eftir nátt­úru­legum tíða­hring, þannig að konur tækju hana í 21 dag (þrjár vikur) en fram­kalla þyrfti svo blæð­ingar í fjórðu vik­unni. Rann­sóknir sýna hins vegar að þetta hlé er ekki nauð­syn­legt og að sú þekk­ing hafi orðið almenn fyrir ald­ar­fjórð­ungi. Mynd: Shutterstock

Umhverfi okkar er þrungið af alda­gam­alli sögu sem leggur okkur til tvö kyn; karl og konu, þannig að með end­ur­teknum gjörðum okkar og þátt­töku í kynj­uðum heimi sköpum við og end­ur­sköpum við kyn okkar. Í þessum skiln­ingi er kyn félags­leg hug­smíð, eins og heim­spek­ing­ur­inn og póststrúkt­úr­alist­inn Judith Butler hefur lýst.

Hefðin var sú að fólk var þvingað í mót tveggja kynja, sem voru altæk í þeim skiln­ingi að fólk til­heyrði öðru og aðeins öðru. Í anda Butler er kyn fyrst og fremst gjörn­ingur (e. performance) og það er laga­legur réttur þinn að fá að skil­greina kyn þitt eins og þú vilt; hann, hún eða hán. Þetta finnst mér fram­fara­skref en við sitjum eftir sem áður uppi með lík­am­leik­ann. Líkama sem ber líf­fræði­leg merki um að við séum ann­að­hvort fædd til að bera barn eða ekki. Fólk með leg er ný leið til að afmarka til­tek­inn hóp þeirra sem hingað til hafa verið kall­aðar konur.

Að vísu fæð­ast ekki allar konur með leg, og stundum er leg konu fjar­lægt án þess að hún hætti að vera kona. Hér verður lík­am­leiki þeirra sem fæð­ast með leg og skil­greina sig sem konur sér­stak­lega til skoð­unar.

Konan, efnið og náttúran

Þegar rætt er um lík­ama kvenna er lögð gríð­ar­lega áhersla á hið nátt­úru­lega, að virknin þurfi að vera sem nátt­úru­leg­ust. Þessi hugsun um kon­una krist­all­ast vel í orð­notk­un­inni mater (mother) sem hefur sama orð­stofn og efni í lat­ínu og er rót í enska orð­inu maternity. Þess vegna felst í því mót­sögn að hegna okkur fyrir að vera material girls, vera upp­teknar af ytra byrði, lík­am­anum. Margt í menn­ing­unni gerir ráð fyrir að konur hugsi meira um lík­am­leik sinn en karlar en konur sem hins vegar telj­ast of upp­teknar af lík­am­leik sínum eru dæmdar fyrir það og taldar hlut­gera sig, smætta sig. Við upp­hefjum móð­ur­ina, en dæmum stelpuna. Ein­stigið er mjótt þegar kemur að kven­leik­anum.

Sem dæmi um þessa hugsun er þróun getn­að­ar­varn­arpill­unnar. Hún var þróuð með það í huga að líkja eftir nátt­úru­legum tíða­hring, þannig að konur tækju hana í 21 dag (þrjár vikur) en fram­kalla þyrfti svo blæð­ingar í fjórðu vik­unni. Ég var ein af þeim sem leið vít­isk­valir vegna mígrenis þegar ég hafði blæð­ingar og hefði vel þegið að líkja ekki eftir nátt­úr­unni. Kven­sjúk­dóma­lækn­ir­inn minn benti mér á fyrir stuttu að engar rann­sóknir bentu til að þetta hlé væri nauð­syn­legt og sú þekk­ing hefði verið orðin almenn fyrir um 25 árum síðan. Hún hafði ein­fald­lega ekki ratað til mín því menn vildu ein­fald­lega halda áfram að líkja eftir tíða­hring kvenna, hinu nátt­úru­lega.

Eins hef ég fengið að vita að meg­in­á­stæðan fyrir mígrenisköstum mínum voru hormón og hversu miklar dýfur þau tóku í hinum nátt­úru­lega tíða­hring mínum. Í stað þess að mæla horm­ónin mín og tryggja að estrógen færi aldrei undir til­tekin mörk þegar kæmi að blæð­ingum var ég frekar látin kljást við mígrenið og afleið­ingar þess með lyfja­töku, sem virk­aði stundum. Sterk mígren­is­lyf eru heppi­legri fyrir konur en hormón. Nú hafa konur mér skyldar sem eru að kljást við það sama fækkað mjög mígrenisköstum sínum með því að taka inn lágan skammt af estró­geni. Eins hefur lengi verið haldið að konum að reyna að forð­ast horm­óna­inn­töku við breyt­ing­ar­skeið. Náttúran skal ríkja í og yfir kon­unni.

Aftur og aftur hef ég verið áminnt um þennan lík­am­leika, og nú síð­ast í tengslum við breyt­inga­skeiðið. Í kringum fimm­tugt fer fólk með virka eggja­stokka í gegnum sína síðgelgju, eða aðra umbreyt­ingu á lífs­skeið­inu (e. transformation). Estrógen og pró­gesterón minnkar og testó­sterón verður því hlut­falls­lega hærra í lík­am­anum.

Eins og kynja­fræð­ing­ur­inn Raewyn Connell hefur bent á þá eru kven- og karl­hormón að nokkru leyti svipuð í sex­tugum hjónum ef ekki hefur verið gripið inn í og því að mörgu leyti lík­am­lega auð­veld­ara að skil­greina kyn sitt upp á nýtt á þeim aldri eins og hún sjálf gerði. Fram að því var hún betur þekkt sem Bob Connell. Ég og margar konur í kringum mig viljum hins vegar við­halda ákveðnum eig­in­leikum sem til­heyra okkar kven­lægu kyní­mynd og í mörgum til­fellum að koma í veg fyrir heilsu­fars­rýrnun. Margar okkar finna tals­vert fyrir þessu. Besta leiðin til þess er hreyf­ing, holl­usta og að taka inn hormón.

Að uppfylla kvenlæga kynímynd en vera ávallt náttúruleg

Okkur er hins vegar upp­álagt að vera sem nátt­úru­leg­astar og að taka öllum þessum breyt­ingum með jafn­að­ar­geði. Konur sem hins vegar ganga þann veg að vilja við­halda til­teknum þáttum í kven­leika sínum með inn­gripum eru taldar óekta. Þær þurfa að búa við þá hug­mynd að þær séu hræddar við að eld­ast, hræddar við hið nátt­úru­lega ferli að lík­am­inn umbreyt­ist. Mögulega mun trans-kyn­slóðin sem er að vaxa nú úr grasi ná að umbreyta þessum for­dómum gagn­vart þeim konum sem vilja skapa auk­inn stöð­ug­leika í horm­óna­lífi sínu.

Kyngervi er ferli, ekki síður en fasti, og fólk með virka eggja­stokka er framan af full­orð­ins­æv­inni í stöð­ugu flúkti með sín hormón en gengur í gegnum veru­legt óum­beðið umbreyt­inga­ferli horm­óna í kringum fimm­tugt. Kyn er mjög flókið sam­spil lík­am­legra, félags­legra og sál­rænna atriða og að vera kyn­vera er ekki eig­in­leiki sem varir óbreyttur alla ævi. Öllu heldur er það að vera kyn­vera ferli sem markast mjög af breyti­legum horm­óna­bú­skap. Ferlinu eru sett marg­vís­leg mörk, sum lík­am­leg, sum félags­leg og sum sál­ræn. Út frá skiln­ingi Butler á kyni sem gjörn­ingi eru konur um fimm­tugt sem fara ekki á nein hormón en finna fyrir miklum breyt­ingum í ein­hverjum til­fellum þving­aðar inn í nýja kyn­gjörn­inga og látið að því liggja að þær hafi ekk­ert val þar um.

Það er mis­skiln­ingur því hér ríkir sá laga­legi skiln­ingur að fólk hafi val um kyn og kyn­gjörn­inga (sjá lög um kyn­rænt sjálf­ræði, 80/2019) og mark­mið íslenska rík­is­ins er að tryggja að kyn­vit­und hvers og eins njóti við­ur­kenn­ingar. Ríkið hefur því við­ur­kennt að það megi breyta horm­óna­bú­skap og skapa horm­óna­stöð­ug­leika í líf fólks sem vilja lík­am­leika í takt við eigin kyn­vit­und.

Slík hugsun þarf ein­fald­lega að ná til allra, einnig til þeirra ein­stak­linga sem vilja við­halda ákveðnum kyn­lægum ein­kennum sem þau fædd­ust með eða lifa við meiri horm­óna­stöð­ug­leika. Að það fái sams konar við­ur­kenn­ingu hjá rík­inu og inn­grip hjá trans­fólki sem fer í horm­óna­með­ferðir til að full­nægja kyní­mynd sinni (þótt auð­vitað sé langt í land með að sam­fé­lagið allt hafi við­ur­kennt rétt þeirra). Í stað þess að ríkið skapi slíkt kerf­is­lægt utan­um­hald fyrir konur hafa sprottið upp ýmis einka­fyr­ir­tæki til að svara þess­ari eft­ir­spurn kvenna eftir mæl­ingum, með­ferðum og eft­ir­liti þegar kemur að breyt­inga­skeið­inu, bylgja sem hefur risið upp á síð­ustu árum í kjöl­far auk­innar með­vit­undar um áhrif horm­óna á kyn og kyn­ver­und (þökk sé m.a. bar­áttu trans­fólks).

Tregða gagnvart kyngjörningum kvenna

Kostn­að­ur­inn sem leggst á konur sem þegar hafa minna efna­hag­skap­ítal en karl­kynið er umhugs­un­ar­verður. Af hverju er ekki fyrir löngu búið að þróa tæki sem mælir estrógen, rétt eins og blóð­sykur, þegar það er vitað hversu flökt­andi það er á ákveðnum tíma­skeiðum í lífi kvenna og hversu mikil áhrif flöktið getur haft?

Við leggjum ólíkan skiln­ing í það hvað það er að vera kona, karl eða kvár. Kynímynd kvenna er mjög marg­breyti­leg og við þurfum að berj­ast fyrir svig­rúmi þeirra til kyn­gjörn­inga í takt við eigin kyn­vit­und. Þá er ég ekki að gagn­rýna þær konur sem telja lík­am­leika kyns skipta litlu máli eða fara í gegnum þessar horm­óna­breyt­ingar án mik­illa átaka, varð­andi heilsu eða kyní­mynd.

Ég er hér aðal­lega að gagn­rýna þá tregðu sem ríkir gagn­vart kyn­gjörn­ingum kvenna til að víkja frá „hinu nátt­úru­lega“. Heim­ur­inn er ekki lengur eins og hann var, heldur fullur af plasti og mengun sem hefur m.a. áhrif á horm­óna­starf­sem­ina. Eflaust hefur við­miðið um hina nátt­úru­legu hreinu konu verið þægi­legra fyrir for­mæður okkar. Einnig vegna þess að lífslíkur þeirra voru mun lægri. Nú er öldin önnur.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár