Úr Kísildalnum í kvennafangelsi

El­iza­beth Hol­mes, sem ætl­aði að bjarga heim­in­um með bylt­ing­ar­kenndri blóð­skimun­ar­tækni, er komin í fang­elsi, alrík­is­fang­elsið í Bryan, Texas. Þar er örygg­is­gæsla í lág­marki og Holmes nýtur félags­skapar ann­arra kvenna sem framið hafa hvít­flibba­glæpi, þar á meðal raun­veru­leika­stjörnu.

Úr Kísildalnum í kvennafangelsi
Fangi Elizabeth Holmes hóf afplánun í alrík­is­fang­els­inu í Bryan, Texas, 30. maí. Fyrir nokkrum árum var hún frum­kvöð­ull í Kís­ildalnum sem átti líf­tækni­fyr­ir­tæki sem var metið á 9 millj­arða doll­ara en í dag er hún fangi sem þarf að greiða um 450 millj­ónir í skaða­bætur til fjár­festa sem hún féfletti. Mynd: AFP

Elizabeth Holmes hóf afplánun 30. maí, um hálfu ári eftir að dómur var kveð­inn upp yfir henni, 11 ára fang­elsi fyrir að svíkja fjár­festa var nið­ur­staða dóm­ara eftir umfangs­miki rétt­ar­höld. Holmes reyndi hvað hún gat til að fá afplán­un­inni frestað, meðal ann­ars með þeim rökum að hegðun hennar hefði verið til fyr­ir­myndar á meðan rétt­ar­höld­unum stóð og að hún hefði enga ástæðu til að flýja land þar sem hún á í góðu og ást­ríku sam­bandi við fjöl­skyldu sína, en Holmes á tvö börn: William sem er tveggja ára og Invicta sem fædd­ist í febr­úar.   

Afplánun Holmes átti að hefj­ast 27. apríl en lög­mönnum hennar tókst á ell­eftu stundu að fresta afplán­un­inni með því að leggja fram áfrýj­un­ar­beiðni til níunda áfrýj­un­ar­dóm­stóls Banda­ríkj­anna (e. United States Courts for the Ninth Circuit) og með henni frestað­ist afplánun Holmes sjálf­krafa þar til áfrýj­un­ar­dóm­stóll­inn tók afstöðu til beiðn­innar. Holmes var því frjáls ferða sinna, gegn trygg­ingu, en það varði stutt þar sem áfrýj­un­ar­dóm­stóll­inn hafn­aði beiðn­inni. Holmes hóf því loks afplánun í síð­ustu viku, nánar til­tekið klukkan 14, þriðju­dag­inn 30. maí. 

AFP

Ætlaði að bjarga heiminum

Holmes ætl­aði að breyta og bjarga heim­inum þegar hún stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Theranos aðeins 19 ára gömul og hélt því fram að hún hefði þróað bylt­ing­ar­kennda blóð­skimun­ar­tækni sem gæti greint hund­ruð sjúk­dóma.

Tækin sem Holmes lét vís­inda­menn sína nota voru hins vegar þegar aðgengi­leg á mark­aði og hún vissi sjálf að tæknin sem hún barð­ist fyrir virk­aði ekki. En hún lét það ekki stöðva sig og sveik fé út úr fjölda fjár­festa áður en upp komst um að vís­indin að baki starfi Theranos stóð­ust ekki. Saga Elizabeth Holmes er um margt áhuga­verð og sendir nið­ur­staða dóms­ins skýr skila­boð til Kís­ildals­ins: Það eru afleið­ingar af því að ljúga að fjár­festum. 

Raunveruleikastjarna sem herbergisfélagi?

Alrík­is­fang­elsi í Texas, FPC Bryan, verður heim­ili Holmes til 30. ágúst 2034, það er að segja ef hún mun afplána alla 135 mán­uð­ina. 

Alrík­is­fang­elsi í Bryan, TexasFang­elsið sem Elizabeth Holmes afplánar 11 ára fang­els­is­vist er í Bryan, Texas.

Fang­elsið er um 160 kíló­metra norð­vestur af Houston, borg­inni sem Holmes ólst upp að hluta, og þar afplána um 655 konur hverju sinni. Örygg­is­gæsla í fang­els­inu er í lág­marki og flestar kon­urnar sem þar afplána eru sekar um ýmis konar hvít­flibba­glæpi. Holmes er án efa fræg­asta konan sem situr inni í Bryan þessa stund­ina en meðal sam­fanga hennar er Jen Shah, sem aðdá­endur raun­veru­leika­þátta ættu að kann­ast við úr Real Housewives of Salt Lake City. Shah, líkt og Holmes, situr inni fyrir fjár­svik.   

HúsmóðirJen Shah, raun­veru­leika­stjarna úr sjón­varps­þátt­unum Real Housewives of Salt Lake City, afplánar dóm fyrir fjár­svik og pen­inga­þvætti í sama fang­elsi og Holmes afplánar sinn dóm.

Shah gæti verið her­berg­is­fé­lagi Holmes en fangar eru yfir­leitt í fjórar til átta saman í svefn­klefa í tveggja manna kojum. 

Holmes hefur nú sagt skilið við svarta rúllu­krag­ann sem hún klædd­ist í þeirri trú að vera tekin alvar­lega, líkt og Steve Jobs, í Kís­ildalnum. Það var reyndar hennar eigin ákvörðun en hún hefur lítið að segja um klæða­burð­inn í fang­els­inu: Khaki-buxur og khaki-skyrta verður ein­kenn­is­klæðn­að­ur­inn næstu árin. 

Fang­arnir í FPC Bryan eru vaktar klukkan 6 á hverjum morgni, að því er fram kemur í hand­bók fang­els­is­ins. Daglegt líf snýst svo um vinnu og tóm­stundir. Allir fangar þurfa að vinna og er tíma­kaupið á bil­inu 12 sent til 1,15 Banda­ríkja­dala. Vinnan felst ýmist í mat­ar­und­ir­bún­ingi eða verk­smiðju­vinnu. Utan vinnu­tíma geta fangar tekið nám­skeið í við­skipta­fræði og erlendum tungu­málum, horft á sjón­varpið, stundað íþróttir eða sótt trú­arat­hafnir.   

Holmes getur talað við fjöl­skyldu sína með mynd­sím­tölum og fær heim­sóknir frá eig­in­manni sínum og börnum um helgar og á sér­stökum frí­dögum. Börn Holmes verða 11 og 13 ára þegar hún lýkur afplánun. Holmes er í hópi kvenna sem fer ört fjölg­andi í fang­elsum í Banda­ríkj­unum, síð­ustu tvo ára­tugi hefur kven­kyns föngum fjölgað um 700 pró­sent. Meiri­hluti þeirra eru mæður, rétt eins og Holmes.  

Gert að greiða milljarða í skaðabætur

Auk þess að afplána 11 ára fang­els­is­dóm var Holmes dæmd til að greiða 452 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur rúmum 64 millj­örðum króna. Upphæðin skipt­ist á milli hennar og Ramesh “Sunny” Balwani, fyrrum kærasta og við­skipta­fé­laga. Hann hlaut þyngri dóm en hún, 13 ár, og hóf afplánun í apríl eftir árang­urs­lausar áfrýj­un­ar­til­raunir. 

Sjálf hefur Holmes gefið út að hún sé nán­ast gjald­þrota og geti ekki einu sinni greitt lög­fræð­ingum sínum. Lífið hefur því breyst tals­vert. Fjöl­miðlar, sem áður fjöll­uðu um Holmes sem yngsta kven­kyns millj­arða­mær­ing­inn sem byrj­aði frá grunni og „næsta Steve Jobs“ er núna „frum­kvöð­ull­inn sem féfletti fræð­gar­menni“ á borð við Henry Kiss­in­ger fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár