Afplánun Holmes frestað – um sinn

Elizabeth Holmes, sem ætl­aði að bjarga heim­inum með bylt­ing­ar­kenndri blóð­skimun­ar­tækni en var dæmd í 11 ára fang­elsi fyrir að svíkja fjár­festa, átti að hefja afplánun á fimmtu­dag. Því hefur nú verið slegið á frest á meðan hún bíður nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­dóm­stóls.

Afplánun Holmes frestað – um sinn
Frum­kvöð­ull eða glæpa­maður? Elizabeth Holmes, stofn­andi líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Theranos, ætl­aði að breyta heim­inum með bylt­ing­ar­kenndri blóð­skimun­ar­tækni. Hún var dæmd í 11 ára fang­elsi fyrir að svíkja fjár­festa og reynir nú hvað hún getur til að fresta afplánun. Mynd: AFP

Sem barn þráði Elizabeth Holmes ekk­ert meira en upp­götva eitt­hvað sem mann­kynið vissi ekki að væri mögu­legt. Hún hætti í háskóla­námi og stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Theranos sem átti að geta greint sjúk­dóma með einum blóð­dropa. Tækin sem Holmes lét vís­inda­menn sína nota voru hins vegar þegar aðgengi­leg á mark­aði og hún vissi sjálf að tæknin sem hún barð­ist fyrir virk­aði ekki. En hún lét það ekki stöðva sig og sveik fé út úr fjölda fjár­festa áður en upp komst um að vís­indin að baki starfi Theranos stóð­ust ekki. 

Holmes var dæmd í 11 ára fang­elsi í nóv­em­ber í fyrra og átti að hefja afplánun á fimmtu­dag. Alrík­is­dóm­stóll í Kali­forníu hafn­aði beiðni Holmes fyrr í mán­uð­inum um frestun afplán­unar á meðan hún bíður þess að mál hennar verður tekið til áfrýj­unar. Beiðn­inni var hafnað þar sem dóm­ari taldi Holmes ekki ná að sýna fram á að áfrýj­un­ar­ferlið myndi leiða til nýrra rétt­ar­halda. 

Lögmenn Holmes lögðu hins vegar fram nýja áfrýj­un­ar­beiðni í vik­unni, nú til níunda áfrýj­un­ar­dóm­stóls Banda­ríkj­anna (e. United States Courts for the Ninth Circuit) og með henni frest­ast afplánun Holmes sjálf­krafa þar til áfrýj­un­ar­dóm­stóll­inn hefur tekið afstöðu til beiðn­innar. Holmes er því frjáls ferða sinna, gegn trygg­ingu, þar til ákvörðun áfrýj­un­ar­dóm­stóls­ins liggur fyrir.

Afplánun Sunny hafin

Ramesh “Sunny” Balwani,  fyrrum við­skipta­fé­lagi og kær­asti Holmes, hefur farið svip­aða leið í gegnum dóms­kerfið og Holmes. Hann var dæmdur í 13 ára fang­elsi síð­asta sumar og átti að hefja afplánun í nóv­em­ber en tókst að fresta því nokkrum sinnum, þar til nú en hann hóf afplánun í San Pedro alrík­is­fang­els­inu í Kali­forníu 20. apríl eftir að áfrýj­un­ar­dóm­stóll hafn­aði beiðni hans um end­ur­upp­töku. 

Mál Holmes og Theranos vakti gríð­ar­lega athygli þegar upp komst að Theranos, líf­tækni­fyr­ir­tæki sem Holmes stofn­aði þegar hún var 19 ára gömul, stund­aði rann­sóknir sínar með tækjum sem þegar voru til. Í rétt­ar­höld­unum í jan­úar í fyrra sak­aði Holmes Balwani um and­­legt ofbeldi og kyn­­ferð­is­­lega mis­­­notkun sem átti sér stað á þeim tíma sem hún á að hafa svikið fjár­­­festa. Holmes segir að ofbeldið hafi haft áhrif á and­­legt ástand hennar á þessum tíma.

13 ára fang­elsiRamesh "Sunny" Balwani, fyrr­ver­andi kær­asti og við­skipta­fé­lagi Elizabeth Holmes, hóf 13 ára afplánun sína 20. apríl.

Var sannfærð um eigin snilligáfu

Holmes ætl­aði alltaf að ná langt. Í bréfi sem hún skrif­aði föður sínum níu ára gömul sagð­ist hún „þrá mest af öllu að upp­götva eitt­hvað nýtt, eitt­hvað sem mann­kynið vissi ekki að væri mögu­leg­t“. Hún hóf nám í efna­verk­fræði við Stan­for­d-há­skóla árið 2002 þar sem hún fékk þá hug­mynd að fram­leiða plástra sem geta sagt til um sýk­ingar og veitt sýkla­lyf eftir þörf­um. Phyllis Gar­dner, sér­fræð­ingur í klínískri lyfja­fræði við háskól­ann, sagði Holmes að slíkt myndi ekki ganga upp. „Hún starði bara á mig,“ segir Gar­dner í sam­tali við BBC. Holmes var sann­færð um eigin snilli­gáfu að sögn Gar­dner. „Hún hafði ekki áhuga á sér­þekk­ingu minni og það vakti með mér óhug“.

Holmes hélt ótrauð áfram, hætti í háskóla­nám­inu og stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Thera­nos árið 2003, þá aðeins 19 ára göm­ul. 13 árum síðar kom hún af krafti inn í Kís­ildal­inn þegar hún hélt því fram að hafa þróað bylt­ing­ar­kennda blóð­skimun­ar­tækni sem gæti greint hund­ruð sjúk­dóma, líkt og krabba­mein og syk­ur­sýki, með örfáum blóð­drop­um. Með þess­ari bylt­ing­ar­kennda nýju tækni yrðu nálar úr sög­unni. Holmes sann­færði marga valda­mikla ein­stak­linga til að fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu eða sitja í stjórn þess. Eða bæði. Þeirra á meðal eru fjöl­miðla­jöf­ur­inn Rupert Mur­doch og tækniris­inn Larry Elli­son. Þá áttu tveir áhrifa­miklir stjórn­mála­menn sæti í stjórn Thera­nos, Henry Kiss­in­ger fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og James Mattis fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra.

„Næsti Steve Jobs“Elizabeth Holmes var útnefnd ein af áhrifa­mestu ein­stak­lingum árs­ins 2015 af Time Magazine. Stuttu seinna steig fram upp­ljóstr­ari innan fyr­ir­tæk­is­ins og sagð­ist efast um grein­ing­ar­tæki fyr­ir­tæk­is­ins.

Þegar best lét var Thera­nos metið á níu millj­arða doll­ara eða sem nemur rúmum 1.200 millj­örðum króna. Fjöl­miðlar fjöll­uðu um Holmes sem yngsta kven­kyns millj­arða­mær­ing­inn sem byrj­aði frá grunni, hún átti að vera „næsti Steve Jobs“ og Time Magazine útnefndi hana eina af áhrifa­mestu ein­stak­lingum árs­ins 2015. 

En það ár fór að halla undan fæti þegar upp­ljóstr­ari innan fyr­ir­tæk­is­ins steig fram og sagð­ist efast um grein­ing­ar­tæki fyr­ir­tæk­is­ins. The Wall Street Journal birti ítar­legar frétta­skýr­ingar um fyr­ir­tækið þar sem í ljós kom að Thera­nos stund­aði rann­sóknir sínar með tækjum sem þegar voru aðgengi­leg á mark­aði. Fljót­lega kom í ljós að um stærð­ar­innar blekk­ing­ar­leik var að ræða. Starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins var aft­ur­kallað árið 2016 og tveimur árum síðar var Thera­nos leyst upp.

Holmes var hand­tekin í júní 2018, sökuð um að hafa svikið fjár­festa um 945 millj­ónir doll­ara, sem nemur rúm­lega 128 millj­örðum króna. Holmes var látin laus gegn trygg­ingu og árið 2019 gift­ist hún William Evans, 27 ára erf­ingja Evans-hót­el­keðj­unn­ar. Þau eign­uð­ust son í júlí 2021. Nýtil­komið móð­ur­hlut­verk Holmes var talið geta haft áhrif á ákvörðun kvið­dóms­ins en svo virð­ist ekki hafa ver­ið.

Ólétt á leið í dóm­salElizabeth Holmes á leið í dóm­sal í fylgd móður sinnar og eig­in­manns í nóv­em­ber í fyrra þegar dómur yfir henni var kveð­inn upp. Hún var þá komin sex mán­uði á leið með annað barn þeirra hjóna.

„Ég er nið­ur­brotin vegna mis­gjörða minna“

Dómur var kveð­inn upp í nóv­em­ber í fyrra. „Ég er nið­ur­brotin vegna mis­gjörða minna,“ sagði tár­vot Holmes í dóm­sal í þegar hún var dæmd til 11 ára fang­els­is­vistar fyrir að svíkja fjár­festa. Dóm­ur­inn mark­aði ákveðin kafla­skil í ára­langri umræðu um menn­ingu í Kís­ildalnum sem snýr að ýkjum og öfgum í frum­kvöðla­heim­in­um. Nið­ur­staða dóms­ins sendir skýr skila­boð til Kís­ildals­ins: Það eru afleið­ingar af því að ljúga að fjár­­­festum.

Holmes var ólétt að öðru barni sínu þegar dómur var kveð­inn upp og rétt eins og í rétt­ar­höld­unum var þeirri spurn­ingu velt upp hvort barn­eignir myndu hafa áhrif á afstöðu dóm­ara. Edward Davila, dóm­ari í máli Holmes, ein­blíndi hins vegar á gjörðir hennar. Dóm­ar­inn sagði Holmes „bráð­gáf­að­an“ frum­kvöðul. Harm­leik­ur­inn í þessu máli, að mati hans, er að Holmes er bráð­gáf­uð. „Mi­s­tök eru eðli­leg. En að mis­takast með því að svíkja fé út úr fólki er ekki í lag­i,“ sagði Dav­ila í beinu ávarpi til Holmes þegar hann kvað upp dóm sinn.

Holmes hefur nú barist fyrir því í fimm mán­uði að áfrýja dómnum og um leið fresta afplánun, sem átti að hefj­ast 27. apríl. 

Mál hennar á lík­lega eftir að velkj­ast um í dóms­kerf­inu næstu mán­uði og jafn­vel ár en nið­ur­staða áfrýj­un­ar­dóm­stóls um hvort hún fái að ganga laus gegn trygg­ingu á meðan það ferli stendur yfir ætti að skýrist innan örfárra vikna. 

Fastlega má gera ráð fyrir því að Holmes muni verja öllum stundum með fjöl­skyld­unni þangað til. Holmes gift­ist William Evans, 28 ára erf­ingja Evans-hót­el­keðj­unnar, árið 2019 og saman eiga þau tvö börn; William sem er tveggja ára og dótt­ur­ina Invicta sem fædd­ist í febr­úar. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár