Liz Holmes vill að fólk gleymi Elizabeth

Svörtu rúllu­krag­arnir og djúpa röddin heyra sög­unni til. Liz Holmes vill segja skilið við Elizabeth, sem dæmd hefur verið í ell­efu ára fang­elsi.

Liz Holmes vill að fólk gleymi Elizabeth
Liz Elizabeth Holmes ætl­aði að bjarga heim­inum me bylt­ing­ar­kenndri blóð­skimun­ar­tækni.

Elizabeth Holmes hefur sagt skilið við svörtu rúllu­kraga­peys­una og djúpu rödd­ina sem hún beitti í þeirri trú að vera tekin alvar­lega í Kís­ildalnum. „Ég trúði því að með þessu yrði ég góð í við­skiptum og tekin alvar­lega, ekki sem litla stelpan sem hafði ekki góðar hug­myndir í tækni­geir­anum,“ segir Elizabeth Holmes við blaða­mann New York Times í nýbirtu við­tali, sem er það fyrsta sem hún veitir í sjö ár, eða frá því að lög­mannateymi hennar ráð­lagði henni að hafa hljótt um sig. 

Í dag er hún Liz, ekki Elizabeth. Hún er tveggja barna móðir, eig­in­kona og ver tíma sínum meðal ann­ars í að svara sím­tölum í hjálp­ar­síma fórn­ar­lamba nauð­gana. 

Holmes ætl­aði að breyta og bjarga heim­inum þegar hún stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Theranos aðeins 19 ára gömul og hélt því fram að hún hefði þróað bylt­ing­ar­kennda blóð­skimun­ar­tækni sem gæti greint hund­ruð sjúk­dóma. Það reynd­ist ekki rétt og reynir hún nú hvað hún getur til að fresta því að hefja afplánun 11 ára fang­els­is­dóms fyrir að blekkja fjár­festa. 

En hún trúir því enn að hún geti breytt heim­inum með nýrri upp­götvun í heil­brigð­is­vís­indum. „Ég hef enn þá þessa sömu köllun og áður og ég finn að þörfin er enn til staðar,“ segir Holmes. Það breytir því þó ekki að hún hefur verið dæmd í 11 ára fang­elsi, þótt enn sé óljóst hvenær afplán­unin hefst þar sem beðið er eftir nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­dóm­stóls.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár