Þráði að „uppgötva eitthvað sem mannkynið vissi ekki að væri mögulegt“

Hún var „yngsti kven­kyns millj­arða­mær­ing­ur­inn sem byrj­aði frá grunni“, „næsti Steve Jobs“ og útnefnd ein af áhrifa­mestu ein­stak­lingum árs­ins 2015 af Time Magazine. Elizabeth Holmes var á toppnum en hefur nú verið sak­felld fyrir að svíkja fjár­festa.

Þráði að „uppgötva eitthvað sem mannkynið vissi ekki að væri mögulegt“
Elizabeth Holmes, stofn­andi Theranos, á yfir höfði sér ára­tuga fang­els­is­vist fyrir að svíkja fjár­festa. Blóð­skimun­ar­tækni sem átti að geta greint hund­ruð sjúk­dóma reynd­ist ekki sönn og Holmes blekkti fjölda fjár­festa. Mynd: EPA

Rétt­ar­höldin yfir Elizabeth Holmes, stofn­anda tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Theranos, hófust fyrir tæpum fjórum mán­uðum. Kvið­dómur komst að nið­ur­stöðu í gær eftir að hafa rætt málin í sjö daga. Holmes var ákærð í ell­efu liðum og fundin sek í fjórum þeirra sem snúa að svikum við fjár­festa. Kvið­dóm­ur­inn sýkn­aði hana meðal ann­ars af því að hafa vís­vit­andi logið að almenn­ingi. Hver ákæru­liður getur leitt til allt að 20 ára fang­els­is­vistar og því á Holmes yfir höfði sér allt að 80 ára dóm. Aðeins var sak­fellt í mál­inu í gær en dómur verður kveð­inn upp síðar. Sak­fell­ingin sendir skýr skila­boð til Kís­ildals­ins: Það eru afleið­ingar af því að ljúga að fjár­festum.

Elizabeth Holmes er fædd árið 1985 og ólst upp á vel stæðu heim­ili í Washington DC. Hún hélt sig til hlés sem barn en var kurt­eis. Níu ára gömul skrif­aði hún föður sínum bréf þar sem hún sagð­ist „þrá mest af öllu að upp­götva eitt­hvað nýtt, eitt­hvað sem mann­kynið vissi ekki að væri mögu­legt“.

Holmes hóf nám í efna­verk­fræði við Stanford-háskóla árið 2002 þar sem hún fékk þá hug­mynd að fram­leiða plástra sem geta sagt til um sýk­ingar og veitt sýkla­lyf eftir þörfum. Phyllis Gardner, sér­fræð­ingur í klínískri lyfja­fræði við háskól­ann, sagði Holmes að slíkt myndi ekki ganga upp. „Hún starði bara á mig,“ segir Gardner í sam­tali við BBC. Holmes var sann­færð um eigin snilli­gáfu að sögn Gardner. „Hún hafði ekki áhuga á sér­þekk­ingu minni og það vakti með mér óhug“.

Örfáir blóðdropar áttu að geta sagt til um hundruð sjúkdóma

Holmes hélt ótrauð áfram, hætti í háskóla­nám­inu og stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Theranos árið 2003, þá aðeins 19 ára gömul. 13 árum síðar kom hún af krafti inn í Kís­ildal­inn þegar hún hélt því fram að hafa þróað bylt­ing­ar­kennda blóð­skimun­ar­tækni sem gæti greint hund­ruð sjúk­dóma, líkt og krabba­mein og syk­ur­sýki, með örfáum blóð­dropum. Með þess­ari bylt­ing­ar­kennda nýju tækni yrðu nálar úr sög­unni. Holmes sann­færði marga valda­mikla ein­stak­linga til að fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu eða sitja í stjórn þess. Eða bæði. Þeirra á meðal eru fjöl­miðla­jöf­ur­inn Rupert Murdoch og tækniris­inn Larry Ellison. Þá áttu tveir áhrifa­miklir stjórn­mála­menn sæti í stjórn Theranos, Henry Kiss­in­ger fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og James Mattis fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra.

James Mattis, fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, bar vitni í rétt­ar­höld­unum yfir Holmes.

Þegar best lét var Thera­nos metið á níu millj­arða doll­ara eða sem nemur tæpum 1.200 millj­örðum króna. Árið 2015 fór að halla undan fæti þegar upp­ljóstr­ari innan fyr­ir­tæk­is­ins steig fram og sagð­ist efast um grein­ing­ar­tæki fyr­ir­tæk­is­ins. The Wall Street Journal skrif­aði ítar­legar frétta­skýr­ingar um fyr­ir­tækið þar sem í ljós kom að Thera­nos stund­aði rann­sóknir sínar með tækjum sem þegar voru aðgengi­leg á mark­aði. Fljót­lega kom í ljós að um stærð­ar­innar blekk­ing­ar­leik var að ræða. Starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins var aft­ur­kallað árið 2016 og tveimur árum síðar var Thera­nos leyst upp.

Holmes var hand­tekin í júní 2018, sökuð um að hafa svikið fjár­festa um 945 millj­ónir doll­ara, sem nemur rúm­lega 123 millj­örðum króna. Holmes var látin laus gegn trygg­ingu og árið 2019 gift­ist hún William Evans, 27 ára erf­ingja Evans-hót­el­keðj­unn­ar. Þau eign­uð­ust son í júlí í fyrra. Nýtil­komið móð­ur­hlut­verk Holmes var talið geta haft áhrif á ákvörðun kvið­dóms­ins en svo virð­ist ekki hafa ver­ið.

Neitar öllum ásök­unum en við­ur­kennir mis­tök

Holmes neit­aði sök í öllum ákæru­liðum og á meðan rétt­ar­höld­unum stóð sak­aði hún fyrr­ver­andi kærasta sinn og við­skipta­fé­laga, Ramesh “Sunny” Balwani, um and­legt ofbeldi og kyn­ferð­is­lega mis­notkun sem átti sér stað á þeim tíma sem hún á að hafa svikið fjár­festa. Holmes segir að ofbeldið hafi haft áhrif á and­legt ástand hennar á þessum tíma.

Elizabeth Holmes og eig­in­maður hennar Billy Evans.

Balwani, sem er 19 árum eldri en Hol­mes, neitar ásök­un­unum Holmes og segir þær sví­virði­leg­ar. Rétt­ar­höld yfir Balwani hefj­ast í næsta mán­uði en ákærur á hendur honum byggja á svip­uðum for­sendum og gegn Holmes. Talið er lík­legt að dómur verði ekki kveð­inn upp yfir Holmes fyrr en þeim rétt­ar­höldum lýk­ur. Holmes er því frjáls ferða sinna, enn sem komið er, og mun eflaust nýta tíma sinn vel með hálfs árs syni sín­um. Blaða­menn sem voru við­staddir sak­fell­ing­una í gær segja að Holmes hafi sýnt litlar sem engar til­finn­ingar þegar nið­ur­staða kvið­dóms­ins var kunn­gjörð. Hún faðm­aði eig­in­mann sinn og for­eldra áður en hún yfir­gaf dóm­sal­inn.

Málið hefur óneit­an­lega vakið heims­at­hygli og til er bók og heim­ilda­mynd um Holmes og Thera­nos. Á næst­unni er svo von á sjón­varps­þátta­röð og kvik­mynd þar sem atburða­rásin verður rakin nán­ar. Enn hefur þó ekki verið útskýrt nákvæm­lega hvað Holmes gekk til með því að ljúga til um blóð­skimun­ar­tækn­ina.Var það þrýst­ing­ur­inn um að ná árangri sem bar Holmes ofur­liði? Rétt­ar­höldin vörp­uðu í raun ekki ljósi á hvað nákvæm­lega átti sér stað þar sem Holmes hélt því statt og stöðugt fram að hún hefði aldrei logið með­vitað að fjár­fest­um. Hún við­ur­kenndi ein­gunis að hafa gert mis­tök.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár