Býr sig undir „skell fasteignaeigenda á næsta ári“

Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuld­ara, segir að emb­ættið sé að búa sig undir fjölda umsókna frá fast­eigna­eig­endum í fjár­hags­vanda. Greina megi auk­inn óró­leika og jafn­vel kvíða hjá fólki sem þiggur síma­ráð­gjöf hjá emb­ætt­inu. Flest sem fá aðstoð eru öryrkjar og lág­launa­fólk á leigu­mark­aði og segir Ásta Sigrún að rík­is­stjórnin verði að bregð­ast við vanda þess hóps.

Býr sig undir „skell fasteignaeigenda á næsta ári“
„Betra að leita sér aðstoðar áður en í óefni er komið“ Ásta Sigrún Helga­dóttir sem hefur verið umboðs­maður skuld­ara í 13 ár segir að gera megi ráð fyrir að eig­endur fast­eigna geti margir lent í greiðslu­erf­ið­leikum á næstu miss­erum.

Ríflega þriðj­ungur þeirra sem sótt hafa um aðstoð umboðs­manns skuld­ara vegna slæmrar fjár­hags­stöðu það sem af er þessu ári eru öryrkjar, hlut­fall þeirra sem eru í vinnu og þeirra sem eru atvinnu­laus er jafn­hátt, eða þrjá­tíu pró­sent þeirra sem hafa þurft að fá aðstoð vegna bágrar fjár­hags­stöðu. 

Flest fólkið sem sækir um er á leigu­mark­aði, eða um 58 pró­sent. Til sam­an­burðar var hlut­fall þeirra sem hafa sótt um aðstoð hjá umboðs­manni skuld­ara á þessu ári og eiga íbúð, sjö pró­sent.

Þetta gæti verið að breyt­ast á næst­unni, það er að segja að eig­endur fast­eigna muni í auknum mæli þurfa aðstoð vegna fjár­hags­erf­ið­leika.  

Ætla að vera tilbúin þegar „skellurinn kemur“

„Við erum að búa okkur undir skell fast­eigna­eig­enda á næsta ári, þessi hópur er ekki enn kom­inn til okkar en síend­ur­teknar stýri­vaxta­hækk­anir hækka ekki ein­ungis hús­næð­is­lánin heldur alla fram­færslu. Við gerum ráð fyrir að eig­endur …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífskjarakrísan

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár