Ógnarhópur hliðhollur Rússum lýsir ábyrgð á netárásum á íslenska netumdæminu

Netárásir hafa verið gerðar í íslenska net­um­dæm­inu í morgun. Varað hefur verið við netárásum í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem hefst í dag. Ógn­ar­hóp­ur­inn NoName057 hefur lýst yfir ábyrgð á árás­unum. Rík­is­lög­regl­stjóri hefur í sam­ráði við net­ör­ygg­is­sveit CERT-IS og Fjar­skipta­stofu lýst yfir óvissu­stigi Almanna­varna vegna netárása sem tengja má við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins.

Ógnarhópur hliðhollur Rússum lýsir ábyrgð á netárásum á íslenska netumdæminu
Alþingi Við Alþing­is­húsið í morgun. Heima­síða Alþingis er á meðal þeirra sem hafa orðið fyrir netárásum í dag. Hakk­ara­hópur hlið­hollur Rússum hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Ógn­ar­hóp­ur­inn NoName057 hefur lýst yfir ábyrgð á netárásum á íslenskar vef­síður, þar á meðal vef Alþingis, í dag. 

CERT-IS, net­ör­ygg­is­sveit Fjar­skipta­stofu, stað­festir að netárásir hafa verið gerðar í íslenska net­um­dæm­inu og hefur ógn­ar­hóp­ur­inn NoName057 lýst yfir ábyrgð. „Dreifðum álags­árásum (DDoS attack) var beint gegn ein­staka vef­síðum og hýs­ing­ar­að­ilum sem gerði það að verkum að margar vef­síður lágu tíma­bundið niðri,“ segir í til­kynn­ingu CERT-IS. Þá hafa inn­brot­stil­raunir (e.intrusion) í kerfi einnig verið gerðar í kjöl­far dreifðra álags­árása. 

Heim­ildin greindi frá því í morgun að allt net­kerfi Alþingis liggur niðri, bæði vef­síða og innra net. Símkerfi Alþingis lá einnig niðri um tíma. Aðrar vef­síður á vegum hins opin­bera, til að mynda Stjórn­ar­ráðið, hafa orðið fyrir árásum. 

Ógn­ar­hóp­ur­inn NoName057 sam­anstendur af hópi tölvu­hakk­ara sem kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið í mars 2022, skömmu eftir inn­rás Rússa í Úkraínu, og lýsti yfir ábyrgð á tölvu­árásir á opin­berar stofn­anir, fjöl­miðla og einka­fyr­ir­tæki í Úkraínu, Banda­ríkj­unum og Evrópu. 

Varað var við auknum líkum á netárásum í aðdrag­anda leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs­ins sem hefst í dag. „Ljóst er að óprút­tnir aðilar gætu viljað nýta sér þennan fund til að valda usla með margs konar netárásum gegn íslenskum innviðum, stofn­unum, og fyr­ir­tækjum. Aukinn við­bún­aður og und­ir­bún­ingur er æski­legur til að draga úr líkum á alvar­legum atvikum eða rekstr­ar­stöðvun inn­lendra aðila,“ segir í til­kynn­ingu frá net­ör­ygg­is­fyr­ir­tæk­inu Syndis frá 24. apríl. 

CERT-IS greinir frá því að við­bragðs­að­ilar hafa unnið að því að koma vef­síðum upp og eflt varnir sínar. Ekki er úti­lokað fleiri árásir verða gerðar á íslenska net­um­dæmið og hvetur CERT-IS rekstar- og örygg­is­stjóra að vera á varð­bergi og til­kynna allt grun­sam­legt á cert@cert.is.  

Net­ör­ygg­is­sveitin varar jafn­framt við að árás­ar­hópar eru að gera til­raunir til að nýta raf­ræn skil­ríki og biður fólk að vera á varð­bergi með auð­kenn­ingar með raf­rænum skil­ríkjum og aðeins stað­festa þær ef fólk hefur örugg­lega beðið um auð­kenn­ingu sjálf.

Uppfært klukkan 15:06: 

Rík­is­lög­regl­stjóri hefur í sam­ráði við net­ör­ygg­is­sveit  CERT-IS og Fjar­skipta­stofu lýst yfir óvissu­stigi Almanna­varna vegna netárása sem tengja má við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem nú fer fram í Reykja­vík.

Í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum kemur fram að í aðdrag­anda fund­ar­ins hefur orðið vart við aukn­ingu í netárásum á íslenska hýs­ing­ar­að­ila, fyr­ir­tæki og stofn­anir.  Á hádegi í það var ákveðið að færa lýsa yfir óvissu­stigi í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun Almanna­varna og CERT-IS um verndun ómissandi upp­lýs­inga­inn­viða. 

Þær álags­árásir sem hafa átt sér stað fyrr í dag ullu tíma­bund­inni truflun á net­sam­bandi  hjá afmörk­uðum hópi aðila, þar á meðal heima­síðu Alþingis, stjórn­ar­ráðs­ins og CERT-IS teym­is­ins.

„Unnið hefur verið að upp­færslu varna og því að færa við­kom­andi vef­síður í fulla virkni. Rétt er að taka fram að umfang og eðli þess­ara árása er í sam­ræmi við það sem búist var við í aðdrag­anda fund­ar­ins,“ segir í til­kynn­ingu Almanna­varna.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár