Netkerfi Alþingis liggur niðri

Vefsíða Alþingis og innra net eru ónot­hæf, sem og sím­kerfi, sem sakir standa. Ragna Árna­dóttir skrif­stofu­stjóri segir málið í athugun en gat ekki stað­fest hvað ylli.

Netkerfi Alþingis liggur niðri
Orsaka leitað Ragna Árna­dóttir skrif­stofu­stjóri Alþingis gat ekki upp­lýst um hvað olli net­bilun þings­ins.

Allt net­kerfi Alþingis liggur niðri eins og sakir standa, bæði vef­síða og innra net. Þá virð­ist sem sím­kerfi þings­ins sé einnig í lama­sessi. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar náði síma­sam­bandi við þingið klukkan 9:20 en sím­talið slitn­aði því sem næst strax og síðan hefur ekki náðst í skipti­borð Alþingis.

Guð­laugur Ágústs­son, örygg­is­stjóri Alþingis, sagð­ist í sam­tali við Heim­ild­ina ekki hafa upp­lýs­ingar um hvort net­kerfið væri úti. Ragna Árna­dóttir skrif­stofu­stjóri stað­festi hins vegar að net og sím­kerfi væru niðri. „Þetta er bara í athugun hjá okkur,“ sagði Ragna í stuttu sam­tali við Heim­ild­ina og sagði að að svo komnu máli gæti hún ekki sagt til um ástæður trufl­an­anna.

Vitað er að uppi voru hót­anir um árásir á ýmis net­kerfi, meðal ann­ars Háskóla Íslands og stjórn­sýsl­unnar, í sam­hengi við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem hefst í dag. Ekki er þó ljóst hvort látið hafi verið verða af þeim árásum og þetta séu afleið­ingar þess.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár