Fyrsta Bretlandsferð Sinfó frá „lokun heimsins“

Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands er komin heim úr vel heppn­aðri tón­leika­ferð um Bretland en hljóm­sveitin hélt alls sjö tón­leika í jafn­mörgum borgum, skrifar Eggert Gunn­ars­son og rifjar upp stofnun hljóm­sveit­ar­innar um leið og hann fjallar um land­vinn­inga hennar.

Fyrsta Bretlandsferð Sinfó frá „lokun heimsins“
Ein skærasta stjarnan Nýtt íslenskt verk eftir Önnu Þor­valds­dóttur, stað­ar­tón­skáld hljóm­sveit­ar­innar, METACOSMOS, var flutt á öllum tón­leikum ferð­ar­innar en önnur verk á efn­is­skrá voru píanó­konsert nr. 2 eftir Rachmaninov og 3. píanó­konsert Beethovens, auk 5. sin­fóníu Tsja­jkov­skíjs.

Það eru liðin 73 ár frá stofnun Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands. Þann 9. mars 1950 hélt þrjá­tíu og níu manna hljóm­sveit tón­leika í Aust­ur­bæj­ar­bíói. Meðal verka sem flutt voru var Egmont-for­leik­ur­inn eftir Beethoven og Ófull­gerða sin­fón­ían eftir Schubert. Dómar dag­blað­anna dag­inn eftir tón­leik­ana voru ein­róma lof á flutn­ing verk­anna. Framan af var sveitin rekin af Rík­is­út­varp­inu, eða til 1983, þegar lög voru sam­þykkt sem tryggðu sjálf­stæðan rekstr­ar­grund­völl hennar.

Heimili sveit­ar­innar varð síðar Háskóla­bíó þar sem margir sigrar voru unnir. En í minn­ing­unni kemur lykt af popp­korni sterkt upp í hug­ann þegar á tón­leika í Háskóla­bíói er minnst, enda voru þar bíó­sýn­ingar öll kvöld nema á fimmtu­dögum þegar hljóm­sveitin lék og oft fyrir hús­fylli. Æfingar fóru fram á mánu­dags-, þriðju­dags-, mið­viku­dags- og fimmtu­dags­morgnum og varð að stilla öllum, stólum, pöllum og stærri hljóð­færum upp áður en með­limir sveit­ar­innar mættu og að lok­inni æfingu var allt tekið af sviði bíós­ins áður en hvíta …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár