Borgaði 2 milljónir fyrir sögufrægt hús á Flateyri sem metið er á 20

Sögu­frægt timb­ur­hús á Flateyri var selt til einka­að­ila í fyrra fyrir 1/10 af fast­eigna­mati. Í hús­inu er rekin bóka- og gjafa­vöru­verslun. Minja­sjóður Önund­ar­fjarðar réði ekki við að fjár­magna end­ur­bætur á hús­inu og reyndi að gefa Ísa­fjarð­arbæ það. Þegar það gekk ekki bauðst eig­anda versl­un­ar­innar, 'Ágústu Guð­munds­dóttur, tæki­færi á að kaupa það fyrir yfir­töku skulda.

Borgaði 2 milljónir fyrir sögufrægt hús á Flateyri sem metið er á 20
Sögu­frægt hús á Flateyri Húsið sem hýsir Gömlu bóka­búð­ina á Flateyri er sögu­frægt en þar hefur verið rekin verslun í meira en öld. Eyþór Jóvins­son er fram­kvæmda­stjóri versl­un­ar­innar og sonur eig­anda húss­ins, Ágústu Guð­munds­dóttur.

Versl­unin Bræð­urnir Eyj­ólfs­synir á Flateyri keypti sögu­frægt hús við Hafn­ar­stræti í þorp­inu á 2 millj­ónir króna í fyrra, jafn­vel þó að fast­eigna­mat húss­ins sé rúmar 20 millj­ónir. Kaup­verðið var greitt með yfir­töku skulda. Húsið sem um ræðir hýsir Gömlu bóka­búð­ina á Flateyri þar sem sonur nýja eig­and­ans, Eyþór Jóvins­son, hefur rekið verslun síð­ast­liðin ár. Tæpum einum og hálfum mán­uði eftir að kaup­samn­ingnum var þing­lýst á fyrri helm­ingi síð­asta árs var húsið veð­sett fyrir 7 millj­óna króna láni hjá Íslands­banka.

Selj­and­inn var sjálfs­eign­ar­stofn­unin Minja­sjóður Önund­ar­fjarðar. Húsið er frá 1898 og er úr timbri. Það er 263 fer­metrar að stærð. 

Húsið hefur ratað í umfjöllun fjöl­miðla síð­ast­liðin ár sökum þess að um er að ræða elstu verslun lands­ins. Eyþór er auk þess langa­fa­barn stofn­anda versl­un­ar­innar og er fjórði ætt­lið­ur­inn úr fjöl­skyld­unni sem rekur hana. Í Gömlu bóka­búð­inni eru bækur seldar eftir vigt auk alls kyns gjafa­vöru. Gamla bóka­búðin rekur einnig  …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Primel Einarsson skrifaði
    Endilega vanda sig í framsetningu. Það að kaupa gamalt hús sem er í niðurníðslu er algjört lotterí en ómetanlegt fyrir samfélagið að einhver taki það í fóstur og sjái um að viðhalda því. Þekki það af eigin raun.
    0
  • VS
    Vilhelm Sigmundsson skrifaði
    Fyrirsögn, leiðrétt: Bjargaði sögufrægu húsi á Flateyri fyrir 2 milljónir. FIFY.
    0
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Lélegt hjá blaðamanni að setja þessa frétt upp eins og kaupendur hafi gerst sekir um spillingu. En hins vegar er fréttagildið óumdeilt. Vanda sig betur í fyrirsögnum Ingi Freyr!!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár