Það þarf þorp til að skapa fjöldamorðingja

Holy Spider er ljóð­ræn mynd á þennan óvenju­lega pers­neska hátt, dimm og drunga­leg, en hjarta hennar slær með ólánsömum konum, sem eru tölu­vert kjark­aðri en aum­ingja­legir karl­arnir, sem öllu ráða.

Það þarf þorp til að skapa fjöldamorðingja
Sjónvarp & Bíó

Holy Spider

Gefðu umsögn

Við erum stödd á götum Masjad, hinnar heilögu borgar, næst­fjöl­menn­ustu borgar Íran. Þar kyssir Somayeh dóttur sína góða nótt og fer svo út í nótt­ina, þar sem hún starfar sem kyn­lífs­verka­kona. Við fylgjum henni eftir, sjáum sam­skipti við vafa­sama kúnna og við dóp­sala, eldri konu sem virð­ist sömu­leiðis vera sálu­sorg­ari hennar. En svo kemur maður á mót­or­hjóli.

Somayeh er meðal fórn­ar­lamba fjöldamorð­ingja sem drap sextán vænd­is­konur árin 2000 og 2001, kyrkti þær venju­lega með þeirra eigin slæðu og henti lík­unum á rusla­hauga borg­ar­innar. Fyrstu tíu mín­út­urnar er hún aðal­per­sóna mynd­ar­innar – og svo tekur blaða­konan Arezoo Rahimi við því hlut­verki. Það er ein­hver þráður á milli þeirra, enda virð­ist blaða­konan sú eina sem hefur ein­lægan áhuga á örlögum þess­ara kvenna.

Hún er kjarna­kvendi en þarf sömu­leiðis að þola ágengni frekra karla, meðal ann­ars lög­reglu­manna, sem hafa miklu minni áhuga á að hjálpa til við rann­sókn­ina. Enda læð­ist að …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár