1049. spurningaþraut: Hversu gömul er Vikan?

1049. spurningaþraut: Hversu gömul er Vikan?

Fyrri auka­spurn­ing:

Árið 1987 var þessi glaða kona mynduð. Hún var þá á hátindi frægðar sinnar sem söng­kona, leik­kona og fyr­ir­sæta. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Vinsæl banda­rísk kvik­mynd frá 1996 nefnd­ist Þjóð­há­tíð­ar­dagur eða Independence Day. Um hvað fjall­aði hún?

2.  Tékk­neski lands­liðs­mað­ur­inn Jakub Jankto komst í fréttir fyrir örfáum vikum. Hann hefur leikið 45 lands­leiki í fót­bolta fyrir karla­lið Tékka en af hverju komst hann í frétt­irnar?

3.  Hvað gera slag­æðar? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

4.  Vikan er komin í hóp elstu og virðu­leg­ustu tíma­rita lands­ins. Hvenær byrj­aði Vikan að koma út? Var það 1788 — 1838 — 1888 — eða 1938?

5.  Argent­ínu­menn eru frægir fyrir kjöt­út­flutn­ing. En hvernig kjöt flytja þeir aðal­lega út?

6.  Hvað kall­ast far­ar­tækið hovercraft á íslensku?

7.  Árið 1961 tók nýr maður við emb­ætti Banda­ríkja­for­seta. Hvað hét hann?

8.  Nýstár­legt þótti að aldrei áður hafði maður til­tek­ins trúflokks náð þessu háa emb­ætti. Hvaða trúflokkur var það?

9.  Árið 1983 kom út fyrsta ljóða­bók ungs höf­undar, Svart­hvít axla­bönd. Árið eftir kom sú næsta, Tví­breitt (svig)rúm. Ljóða­bæk­urnar eru síðan orðnar margar en fyrsta skáld­saga höf­undar kom út 1987, Gangandi íkorni. Árið 2000 fékk höf­undur Íslensku bók­mennta­verð­launin fyrir smá­sagna­safnið Gula húsið. Höf­und­ur­inn er ... hver?

10.  Odoacer eða Ódóvakar var her­for­ingi einn sem tók sér kon­ungs­nafn í til­teknu landi árið 476 e.Kr. eftir að hafa velt fyrri vald­hafa úr sessi. Í sjálfu sér var þetta ekki stór­mál því svo margt gekk á þau miss­erin að ekki er víst að alþýðan hafi látið sig þetta miklu skipta, en í sögu­bókum þykir atburð­ur­inn marka þátta­skil. Hvers vegna?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Af hverjum er myndin hér að neðan? Athugið að myndin er ekki öll þar sem hún er séð.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Innrás geim­vera á Jörðu.

2.  Hann greindi frá því að hann væri sam­kyn­hneigður. Slík yfir­lýs­ing frá atvinnu­fót­bolta­karli þykir enn veru­lega frétt­næm.

3.  Þær flytja blóð FRÁ hjarta út um lík­amann.

4.  1938.

5.  Nauta­kjöt.

6.  Svifnökkvi.

7.  John F. Kennedy.

8.  Kaþ­ólikkar.

9.  Gyrðir Elíasson.

10.  Vegna þess að Odoacer tók sér kon­ungs­nafn á Ítalíu og velti úr sessi síð­asta keis­ara vest­ur­róm­verska rík­is­ins. Þar með var saga Róma­veldis í vestri ölll.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er danska film­stjarnan Brigitte Nielsen.

Á neðri mynd­inni er Adolf Hitler.

Myndina lét banda­rísk leyni­þjón­ustu­stofnun OSS útbúa í lok síð­ari heims­styrj­aldar og var hún ein nokk­urra mynda sem áttu að gefa her­mönnum Banda­ríkj­anna hug­mynd um hvernig Hitler gæti litið út ef hann reyndi að dul­bú­ast og kom­ast undan. Myndin hér til hægri var sú sem leyni­þjón­ustu­menn höfðu til hlið­sjónar þegar þeir útbjuggu mynd­ina.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár