1048. spurningaþraut: Hvaða ár birtist fyrsta fréttamyndin á Íslandi?

1048. spurningaþraut: Hvaða ár birtist fyrsta fréttamyndin á Íslandi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða bíó­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1. Hversu marga daga var Guð að skapa heim­inn sam­kvæmt Bibl­í­unni?

2.  Önnur úr Bibl­í­unni: Hvað gerði móðir Móse til að bjarga lífi hans?

3.  Jennifer Melfi er banda­rískur sál­fræð­ingur, ugg­laust fædd um 1955 og hefur stofu í New Jersey þar sem hún tekur á móti sjúk­lingum. Hún fer ekki í mann­grein­ar­á­lit og reynir að lið­sinna hverjum sem er, jafn­vel þeim sem hafa kom­ist í kast við lögin. Að sumu leyti virkar hún eins og skriftafaðir fyrir hina trú­uðu. Hvar er Jennifer Melfi helst að finna?

4.  Jeffrey Dahmer var banda­rískur karl­maður sem komst í sviðs­ljósið 1991. Hann var myrtur 1994. Í fyrra var frum­sýnd sjón­varps­s­ería um líf hans og vakti hún tölu­verða athygli, þótt ekki hefðu allir geð í sér til að horfa á hana. Hvað var til­kall Jeffreys Dahmers til frægðar?

5.  Í efna­fræði er ákveðið fyr­ir­bæri mælt í svoköll­uðum pH-gildum. Hvað er mælt með pH?

6.  Hvaða stjörnu­merki dýra­hrings­ins er nú í gildi?

7.  Í hvaða heims­álfu er hið sjálf­stæða ríki Micronesia?

8.  Hver sér um þátt­inn Mannamál á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut?

9.  Hér var einu sinni spurt hvar fyrsta sería sjón­varps­þáttar­að­ar­innar The White Lotus gerð­ist. En nú er spurt: Hver ger­ist sería 2?

10.  Í hvaða núver­andi ríki var Mýkenu-menn­ingin við lýði? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á skjá­skot­inu hér að neðan birt­ist mynd sem kölluð hefur verið fyrsta frétta­mynd íslenskrar fjöl­miðla­sögu, þótt hún sé teikn­ing- eða öllu heldur rista - en ekki ljós­mynd. Hvaða ár birti Morg­un­blaðið þessa mynd? Muna má einu ári til eða frá.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sex daga.

2.  Setti hann í körfu og setti hana á flot í ánni Níl.

3.  Í sjón­varps­þátta­röð­inni Sopranos.

4.  Hann var fjöldamorð­ingi.

5.  Sýrustig vatns og/eða vatns­bland­aðra vökva.

6.  Fisk­arnir.

7.  Eyjaálfu.

8.  Sig­mundur Ernir Rún­ars­son.

9.  Á Sikiley.

10.  Grikk­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr The Devil Wears Prada.

Fréttin á neðri mynd­inni birt­ist 1913 svo rétt telst vera 1912-1914.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár