1047. spurningaþraut: Hvað heitir stærsta marðardýrið á íslensku?

1047. spurningaþraut: Hvað heitir stærsta marðardýrið á íslensku?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða stað má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Homarus gammarus heitir dýra­teg­und ein sem flestum þykir bragð­góð. Hún heldur sig fyrst og fremst í Evrópu eða öllu heldur við eða nálægt Evrópu. Hér þekkjum við hins vegar ein­göngu und­ir­teg­und­ina Nephrops norvegicus. Hvaða dýr er þetta?

2.  Hvað heitir söng­konan sem gerði garð­inn frægastan með hljóm­sveit­inni Tod­mobile?

3.  Áður hafði sama söng­kona hins vegar verið í annarri hljóm­sveit sem ættuð var frá Vest­fjörðum. Þar tók hún við söngnum af Helga Björns­syni. Hvað hét hljóm­sveitin?

4.  Hvað heitir myntin sem notuð er í Ástralíu?

5.  Árið 1995 féllu snjó­flóð á tvo bæi á Vest­fjörðum með hörmu­legum afleið­ingum. Hvaða bæir voru það? Nefna þarf báða.

6.  Árið 1613 komst ný keis­ara­ætt til valda í Rúss­landi. Hvað nefnd­ist ættin?

7.  Hvaða for­seti Banda­ríkj­anna fyr­ir­skip­aði að kjarn­orku­sprengjum skyldi varpað á tvær borgir í Japan?

8.  Við hvaða stöðu­vatn stendur Reykja­hlíð?

9.  Kerling telst vera 10. hæsta fjall á Íslandi, 1.538 metra hátt. Hvar er Kerling svona nokkurn veg­inn?

10. Wolverine heitir á ensku rán­dýr eitt á stærð við hund sem býr í öllum norð­lægum löndum en hefur þó aldrei þekkst á Íslandi. Þetta er stærsta dýrið af marðar­ætt sem til er í heimi hér og heitir hvað á íslensku?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða heita karl­arnir tveir á mynd­inni hér að neðan?

***

Aðal­spurn­inga­svör:

1.  Humar.

2.  Andrea Gylfa­dóttir.

3.  Grafík.

4.  Dollar.

5.  Súðavík og Flateyri.

6.  Romanov.

7.  Truman.

8.  Mývatn.

9.  Í Eyja­firði. Á Trölla­skaga telst líka rétt.

10.  Jarfi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hol­men­kollen skíða­stökk­pall­ur­inn í Noregi.

Á neðri mynd­inni eru Deng leið­togi Kína og Carter for­seti Banda­ríkj­anna. Hafa þarf bæði rétt.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár