Spurði Katrínu hvað hefði breyst – og hvers vegna hún væri „hætt að hlusta“

Umræða um útlend­inga­frum­varpið heldur áfram á Alþingi en Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra út í afstöðu hennar gagn­vart umdeildum lög­unum í gær.

Spurði Katrínu hvað hefði breyst – og hvers vegna hún væri „hætt að hlusta“
Alþingi Björn Leví og Katrín ræddu útlend­inga­frum­varpið á þingi í gær. Mynd: Samsett/Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna telur mik­il­vægt að vandað sé til verka þegar útlend­inga­mál eru til með­ferðar í þing­inu. Hún segir að afstaða hennar hafi ekki breyst frá því árið 2017 þegar hún sagði að hlusta ætti á UNICEF og Rauða kross­inn varð­andi þessi mál. 

Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í gær en Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata rifj­aði upp fræg orð hennar áður en hún varð for­sæt­is­ráð­herra um fólk á flótta og spurði hvað hefði breyst síðan þá. 

Framhald af annarri umræðu heldur áfram á þing­fundi eftir hádegi í dag en á mæl­enda­skrá eru tveir þing­menn Pírata, þeir Björn Leví og Andrés Ingi Jónsson. 

Forsætisráðherra hafi skipt um skoðun

Björn Leví hóf fyr­ir­spurn sína á því að rifja upp orð Katrínar frá því í sept­em­ber 2017 en þá sagði hún að þegar fram­kvæmd laga sem varðar fólk í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu, börn, hefði það í för með sér að rétt­læt­is­kennd jafn margra væri mis­boðið, þá væri ástæða til að hlusta. „Þegar UNICEF og Rauði kross­inn biðja okkur að hlusta er ástæða til að hlusta, hlusta og velta því fyrir sér hvort við séum að fram­fylgja lögum sem eiga að byggj­ast á mannúð með þeim hætti sem við eigum að gera þannig að þau upp­fylli skyldur barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem við höfum und­ir­geng­ist,“ sagði Katrín árið 2017.

Björn Leví benti á að nú hefðu bæði Rauði kross­inn og UNICEF ásamt yfir 20 öðrum umsagn­ar­að­ilum lýst yfir áhyggjum af sam­þykkt útlend­inga­frum­varps­ins sem nú er til umræðu á þingi og skorað á Alþingi að tryggja mann­rétt­indi, meðal ann­ars barna á flótta. Að sama skapi var­aði Rauði kross­inn við því að leiða í lög ákvæði til að þröngva flótta­fólki á göt­una í von um að þau færu sjálf­viljug úr landi. Las hann upp úr umsögn Rauða kross­ins en þar stendur: „Er hér raunar lagt til að börn missi rétt til efn­is­með­ferðar ef for­eldrar þess eða umsjón­ar­menn telj­ast vera valdir af töfum. Hingað til hafa börn verið talin eiga sjálf­stæðan rétt til efn­is­legrar með­ferðar.“

Sagði þing­mað­ur­inn jafn­framt að fjöl­mörg fleiri dæmi væru um skerð­ingar á mann­rétt­indum í frum­varp­inu þar sem ekki væri búið að láta meta sam­ræmi við stjórn­ar­skrá né mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. „Nú er hins vegar aug­ljóst að for­sæt­is­ráð­herra er ekki á sömu skoðun og árið 2017 þegar kemur að mik­il­vægi þess að tryggja að mann­rétt­indi séu virt.“ Spurði hann því ráð­herr­ann hvað hefði breyst. „Hvers vegna er hún hætt að hlusta?“

Segir umsagnir hafa komið seint fram

Katrín svar­aði og sagði að umrætt frum­varp væri í tals­vert annarri mynd en þegar það var kynnt á sínum tíma í sam­ráðs­gátt, meðal ann­ars vegna þeirra áherslna, sem hefðu ekki breyst af hálfu Vinstri grænna, sem varða grund­vall­ar­at­riði í útlend­inga­málum og ættu raunar sam­hljóm með ýmsu af því sem var rætt á þing­inu síð­ast þegar þessi mál voru til umfjöll­unar og varðar til dæmis þau atriði sem tengj­ast sér­stökum tengslum útlend­inga við landið og upp­töku efn­is­með­ferðar. 

„Þá hefur einnig verið fjallað sér­stak­lega um hags­muna­mat barna sem er eitt af því sem hefur verið tölu­vert lengi til skoð­unar af hálfu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og unnin var um það sér­stök skýrsla en líka af hálfu mennta- og barna­mála­ráðu­neytis. Þegar hátt­virtur þing­maður fer hér yfir hvort eitt­hvað hafi breyst þá er það svo sann­ar­lega ekki svo. Það hafa einmitt verið gerðar breyt­ingar á mál­inu frá því að það var kynnt upp­haf­lega og þangað til það var lagt fram í þá átt sem ég hef ávallt talað fyrir, sem snýst um það að við höfum vissu­lega útlend­inga­lög­gjöf, það séu ákveðnar reglur um það hvernig við fram­kvæmum hlut­ina en þar sé mann­úð­ar­sjón­ar­miða gætt. 

Ég hef sagt það og mér finnst eðli­legt að til­tekin atriði verði tekin til skoð­unar, meðal ann­ars vegna umsagna sem komu seint fram eftir því sem mér er sagt í með­förum nefnd­ar­innar og það hefur verið reifað að þau mál verði skoðuð milli umræðna.“ Þetta sagði Katrín út frá upp­lýs­ingum frá full­trúa VG í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd því hún situr ekki í nefnd­inni. „Það er bara til marks um þá afstöðu okkar að mjög mik­il­vægt sé að vanda til verka þegar svona mál eru til með­ferðar í þing­inu,“ sagði hún.  

Gamalt frumvarp ekki til umræðu

Björn Leví hélt áfram að spyrja ráð­herr­ann út í málið og sagði að árið 2017 hefði átt að hlusta á Rauða kross­inn og UNICEF. 

„Við erum ekki að ræða gam­alt frum­varp núna, við erum að ræða frum­varp sem er til umræðu í þing­sal núna í annarri umræðu og ef það á að vera vel afgreitt úr nefnd þá á það líka að vera vel afgreitt í annarri umræðu hér í þing­sal, ekki bara laga það ein­hvern veg­inn seinna, við þurfum að hafa þetta alger­lega skýrt. 

En þar sem dóms­mála­ráðu­neyti og meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar huns­uðu einmitt að gera mat á sam­ræmi ákvæða frum­varps­ins og stjórn­ar­skrár við alþjóð­legar skuld­bind­ingar, þvert á allar athuga­semdir helstu fag­að­ila, hvað er þá ráð­herra mann­rétt­inda að gera til þess að búa ráðu­neytið undir það að taka afleið­ing­unum af þess­ari laga­setn­ingu? Eða í raun­inni, með öðrum orðum: Hvernig ætlar ráð­herra að axla ábyrgð ef aðvar­anir umsagn­ar­að­ila raun­ger­ast?“ spurði hann. 

Telur Ísland ekki ganga harðast fram í útlendingamálum

Katrín sagði í seinna svari sínu að það væri svo að þau vissu að öll ríki Evrópu væru að fást við þessi mál og raunar myndi hún nú ekki telja að Ísland gengi harð­ast fram í þessum málum ef lög­gjöf ólíkra ríkja yrðu bornar saman. 

„Þetta er því ekki ein­hver eins­leitur heimur þegar að þessu kemur. Evr­ópu­ríki hafa ákveðið að koma sér saman um til­tekið kerfi og síðan útfæra ríkin það í raun og veru hvert með sínum hætti. Ég vil ítreka að þar gengu Íslend­ingar í raun og veru skemur en mjög mörg nágranna­ríki okkar. Það hefur verið vilj­inn á Alþingi að við séum með til­tölu­lega frjáls­lynda lög­gjöf og það er í anda þess sem mér finnst sjálfri en um leið er líka mik­il­vægt að við tökum til­lit til þeirra sjón­ar­miða sem hafa birst hvað varðar fram­kvæmd lag­anna.

Annað mál sem mér finnst kannski ekki nægj­an­lega rætt er hvernig við síðan fylgjum þess­ari mót­töku eftir því að við getum auð­vitað ekki rætt útlend­inga­málin ein­göngu út frá þeim lögum og reglum sem við setjum um hverjum við tökum á móti, við þurfum líka að ræða það hér í þessum sal hvernig við tökum á móti þeim. Og það skiptir veru­legu máli að ræða þau mál,“ sagði hún að lokum. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    VG er í ríkisstjórn í boði Sjálfstæðisflokksins og þess vegna er ekkert að marka það sem Katrín Jakobsdóttir segir. Það eru gjörðir hennar og annarra VG liða sem segir allt. Munið, það eru margar setningar sem Katrín Jakobsdóttir hefur sagt, og hvað hefur gerst ? Ekkert.
    0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Svo má böl bæta aað benda á annað verra.
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Katrín kemur ekki fram eins og hún sé forsætisráðherra - enda er hún það ekki í raun.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár