Listamenn frá Úkraínu í Norræna húsinu

Í grám­anum í Reykja­vík þessa dag­ana leyn­ist ýmis­legt. Laug­ar­dag­inn 4. febr­úar var opnuð stærsta sýn­ing árs­ins hjá Norræna hús­inu. Þetta er þver­fag­leg sýn­ing sjö lista­manna frá Úkraínu og ber nafnið: Hvernig ég komst í sprengju­byrgið.

Listamenn frá Úkraínu í Norræna húsinu
Hvernig ég komst í sprengju­byrgið Þver­fag­leg sýn­ing sjö úkra­ínskra lista­manna í Norræna hús­inu.

Sýningin hvelf­ist um leið lista­mann­anna að þeirra eigin „per­sónu­lega sprengju­skýli“, að sögn Kol­brúnar Ýrar Ein­ars­dóttur, kynn­ingar- og sam­skipta­stjóra húss­ins. En í kynn­ing­ar­texta segir:

Í sýn­ing­unni kafa lista­menn­irnir djúpt ofan í eigin reynslu af stríð­inu (inn­rás Rússa í Úkraínu), þrána eftir frið­sælu lífi, leið­ina til þess að þrauka af og von­ina um fram­tíð­ina.

Fimm lista­mann­anna komu til lands­ins og voru við­staddir opn­un­ina en borg­ar­stjóri Reykja­víkur opn­aði sýn­ing­una, enda er Reykja­vík­ur­borg vina­borg Lviv í Úkraínu og bæði Yuliia Sapiga, sýn­ing­ar­stjóri sýn­ing­ar­innar, og flestir lista­menn­irnir koma frá Lviv.

Yuliiu Sapiga

Norræna húsið hóf sam­starf með Artist at Risk, sam­tökum í Finn­landi sem sér­hæfa sig í að koma til bjargar lista­mönnum sem búa við hættu­legar aðstæður. Í gegnum þessi sam­tök komust á kynni við Yuliiu Sapiga sem er aðeins 23 ára. Henni var boðið að koma til starfa hjá Norræna hús­inu sem sýn­ing­ar­stjóri yfir úkra­ínskum verk­efnum og hún flutti til Íslands ásamt móður sinni í júlí 2021. 

Í stuttri heim­sókn í Norræna húsið var auð­heyrt á starfs­fólk­inu að það væri sér­stök upp­lifun að und­ir­búa mynd­list­ar­sýn­ingu með lista­mönnum frá landi þar sem geisar stríð.

Oft var erfitt að ná sam­bandi við lista­menn­ina og eins að starfa með graf­ískum hönn­uði í Úkraínu því bæði inter­net og raf­magn hökti, á sumum stöðum var aðeins virkni í fjórar klukku­stundir. Nauð­syn­legt var svo að sækja um sér­stakt leyfi fyrir karl­menn­ina að fá að ferð­ast til Íslands, þar sem her­skylda ríkir í Úkraínu.

Maxim Finogeev

 

Fyrst dag­inn fyrir brott­för var ljóst að lista­mað­ur­inn Maxim Finogeev myndi ná að koma með því leyfið barst ekki fyrr. Hann flýtti sér í lest og var sextán klukku­stundir á leið­inni til Póllands, þaðan sem þau flugu.

Auk þess var flókið að fá lista­verkin til lands­ins. Það var örð­ug­leikum háð að finna flutn­ings­að­ila til að taka að sér verk­efnið og um hríð voru verkin föst í sendi­ferða­bíl við landa­mæri Úkraínu og Póllands. Á end­anum fannst þó aðili sem þorði að taka verk­efnið að sér og fara með bíl­inn og verkin yfir landa­mærin.

Verk: Olena Subach

Í næsta blaði verður umfjöllun um verk þeirra jafnt sem sýn­ing­una í heild.

Þangað til getur þú, les­andi góður, hlakkað til – og von­andi bregður þú þér á sýn­ing­una í milli­tíð­inni.                   

Listamenn­irnir eru flestir fæddir átta­tíu og eitt­hvað – og heita: Kinder Album, Mykhaylo Barabash, Jaroslav Kostenko, Sergiy Petlyuk, Olena Subach, Art Group Sviter, Maxim Finogeev. Sýn­ing­ar­stjóri er Yuliia Sapiga og Olenka Zahorodnyk sér um graf­íska hönnun.

Í bili er vert að staldra við þessi orð sem Olena Subach skrif­aði:

Við sjáum ekki lengur neina fram­tíð

Borgin sem ég bý í, Lviv, er í vest­ur­hluta Úkraínu og hún er í dag stærsta mið­stöð heims sem fólk hefur flúið til undan sprengju­árásum. Úkra­ínu­menn, sem flúið hafa heim­kynni sín og dvelja nú í Lviv, telja yfir þrjú hund­ruð þús­und manns, sam­kvæmt opin­berum tölum. Erfitt er að gera sér umfangið í hug­ar­lund en til skýr­ingar þá jafn­gildir það því að allir íbúar Íslands hefðu tekið sig upp og flutt til Lviv. Í raun er það svo, að frá upp­hafi stríðs­ins hefur Lviv orðið að stað þar sem millj­ónir flótta­fólks hefur fundið sér tíma­bundið skjól, á meðan þau leita að öruggum dval­ar­stað. Sum þeirra gætu átt end­ur­kvæmt heim til sín, en fjöldi fólks hefur að engu að hverfa, þar eð heima­slóðir þeirra, borg­irnar sem þau bjuggu í, hafa verið þurrk­aðar af yfir­borði jarðar. Eins og gerð­ist með Maríupól.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár