Eitt þekktasta nafn evrópsku sviðslistasenunnar

Salka Guð­munds­dóttir skrifar um áhrif Berlín­ar­leik­húss­ins á Íslandi og þýska leik­hús­skáldið Marius von Mayen­burg sem er höf­undur þriggja verka í þrí­leik sem er á fjöl­unum í vetur í Þjóð­leik­hús­inu.

Eitt þekktasta nafn evrópsku sviðslistasenunnar

Það verður að telj­ast til stór­tíð­inda í íslenskum sviðs­listum að Þjóð­leik­húsið skuli á þessu leik­ári og því næsta hafa á dag­skrá sinni glæ­nýjan þrí­leik eftir þýska leik­hús­lista­mann­inn Marius von Mayen­burg. Þrí­leik­ur­inn sam­anstendur af verk­unum Ellen B., Ex og Egal en fyrst­nefnda verkið var nýlega heims­frum­sýnt hér á landi í leik­stjórn Benedicts Andrews. Benedict, sem hefur áður sett upp nokkur af leik­ritum skálds­ins, leik­stýrir fyrri verk­unum tveimur en Marius von Mayen­burg mun sjálfur loka þrí­leiknum með upp­setn­ingu á Egal næsta vetur. Þrátt fyrir að hér­lendis hafi ein­ungis fjögur af verkum leik­skálds­ins áður verið sett á svið teygja áhrif hans, Schaubühne-leik­húss­ins og Berlín­ar­sen­unnar sig víða um íslenskar sviðs­listir.

Marius von Mayen­burg hefur verið eitt þekktasta nafn evr­ópsku sviðs­lista­sen­unnar um langa hríð. Hann sló í gegn undir lok síð­ustu aldar með verk­inu Feuergesicht, sem flutt var í Útvarps­leik­hús­inu undir nafn­inu Eldfés. Árið 1999 gekk Marius til liðs við Schaubühne, eitt helsta leik­hús Þjóð­verja, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár