Fréttaritari í jólabókaflóðinu

Bóka­blaðið fékk Kamillu Ein­ars­dóttur, rit­höf­und og bóka­vörð á Þjóð­ar­bók­hlöð­unni, til að ger­ast sér­legur frétta­rit­ari í jóla­bóka­flóð­inu og fara á stúf­ana. Hún mun skrifa skáld­legar hug­leið­ingar um hinar og þessar bækur sem verða á vegi hennar og slúðra um bókapartí og höf­unda.

Fréttaritari í jólabókaflóðinu

Þegar Kristín Svava hvísl­aði að mér: „Þetta var sko gólfið í lík­hús­inu“ vissi ég að nú yrði senni­lega besta útgáfupartí árs­ins.

Hún var að gefa út bók­ina Farsótt sem er um gamla húsið sem stendur á horni Þing­holts­strætis og Spít­ala­stígs. Ég skildi fyrst ekki alveg hvernig þetta gæti orðið mjög spennó bók. Hélt að þetta yrði kannski eitt­hvað svona um bygg­inga­reglu­gerðir og hvernig drenið hefði verið tekið ærlega í gegn eitt sum­arið.

En eins og Krist­ínar Svövu er von og vísa er þetta brjál­æð­is­lega skemmti­leg bók. Hún fjallar um sögu húss­ins og marg­þætta starf­semi sem þar hefur farið fram – en í leið­inni um sögu Reykja­víkur og alls konar fólk sem þarna vann eða dvaldi. Kryddar með kyn­sjúk­dómum, kúk og vafa­samri með­ferð á líkum og allt ríku­lega mynd­skreytt sem betur fer.

Útgáfupartíið var haldið í þessu …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár