Þjóðaröryggisráð ekki upplýst fyrirfram um rannsókn lögreglu á hugsanlegum hryðjuverkaárásum

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð fékk upp­lýs­ingar um að hugs­an­leg hætta á hryðju­verka­árás væri talin liðin hjá eftir aðgerðir lög­reglu í gær. Þær upp­lýs­ingar sem ráðið hefur fengið eru sam­bæri­legar þeim sem lög­regla gaf á blaða­manna­fundi í dag.

Þjóðaröryggisráð ekki upplýst fyrirfram um rannsókn lögreglu á hugsanlegum hryðjuverkaárásum
Telja sig mögu­lega hafa afstýrt hryðju­verki Lög­reglan telur að hugs­an­lega hafi staðið til að ráð­ast gegn stofn­unum rík­is­ins með þeim vopnum sem gerð voru upp­tæk í aðgerðum gær­dags­ins. Mynd: RÚV

Lögregla upp­lýsti á blaða­manna­fundi nú fyrir skemmstu að með aðgerðum hefði í gær verið komið í veg fyrir yfir­vof­andi hryðju­verkaógn. Í það minnsta leikur grunur á um að hryðju­verka­árás hafi verið í und­ir­bún­ingi. Fjórir íslenskir karl­menn á þrí­tugs­aldri voru hand­teknir í aðgerðum lög­reglu í gær, grun­aðir um stór­felld vopna­laga­brot og fram­leiðslu íhluta í skot­vopn með þrí­vídd­ar­prent­ara. 

Í aðgerðum lög­reglu var hald lagt á tugi vopna, þús­undir skot­færa auk raf­rænna gagna á borð við tölvur og síma. Tveir mann­anna voru úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald í gær, annar í tvær vikur og hinn í eina.

Á blaða­manna­fundi lög­reglu kom fram að grunur léki á að fyr­ir­hug­aðar og hugs­an­legar árásir hafi átt að bein­ast að stofn­unum rík­is­ins, og ætla mætti að Alþingi og lög­regla væru þar á meðal. Jafn­framt hafi Þjóðar­ör­ygg­is­ráði verið gert við­vart.

„Við vorum upp­lýst um að talið væri að hættan væri liðin hjá“
Oddný Harð­ar­dóttir
full­trúi Þjóðar­ör­ygg­is­ráði
Oddný Harð­ar­dóttir

Aðspurð um með hvaða hætti Þjóðar­ör­ygg­is­ráð var upp­lýst um yfir­vof­andi hryðju­verkaógn segir Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og full­trúi í ráð­inu:  „Við höfum ekki fengið neinar aðrar upp­lýs­ingar,“ og vísar þar til þess sem kom fram á blaða­manna­fundi lög­reglu. Hún býst hins vegar við því að farið verði yfir málið á næsta fundi ráðs­ins. Ekki sé búið að tíma­setja þann fund. „En hann verður fljót­lega, skila­boðin eru þau að hann verði fljót­lega.“

Upp­lýs­ingar þær sem Þjóðar­ör­yggs­ráð fékk voru veittar ráð­inu í gær, eftir að aðgerðum lög­reglu lauk, en áður en að rík­is­lög­reglu­stjóri sendi út frétta­til­kynn­ingu um málið, að sögn Oddnýjar. „Við vorum upp­lýst um að talið væri að hættan væri liðin hjá.“

Oddný segir enn fremur að ráðið hafi ekki verið upp­lýst fyrir fram um að verið væri að rann­saka umrætt mál.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hryðjuverkaógn á Íslandi

Skýrslutaka yfir föður ríkislögreglustjóra: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyldmenni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“
FréttirHryðjuverkaógn á Íslandi

Skýrslu­taka yfir föður rík­is­lög­reglu­stjóra: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyld­menni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“

Menn sem grun­aðir eru um að hafa verið að skipu­leggja hryðju­verka­árás hér á landi báru við yfir­heyrslur að hálf­sjálf­virkt skot­vopn í þeirra fórum væri fengið frá Guðjóni Valdi­mars­syni, vopna­sala og föður rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá hefði Guðjón keypt þrí­vídd­ar­prentað skot­vopn af einum mann­anna. Guðjón sagði við skýrslu­töku að annað hvort hefðu lög­reglu­menn ekki kynnt sér ætt­ar­tengsl hans eða verið væri að reyna að koma höggi á rík­is­lög­reglu­stjóra. Stundin hefur skýrsl­una undir höndum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár