Leynihólf í eldhúsinnréttingunni
Leyni­hólf í eld­húsinn­rétt­ing­unni Við hús­leit og skýrslu­töku yfir Guðjóni sagð­ist hann ekk­ert hafa að fela og aldrei hafa heyrt á menn sem hand­teknir voru vegna hryðju­verkaógnar minnst. Hann vís­aði lög­reglu á leyni­hólf í eld­húsinn­rétt­ingu á heim­ili sínu. Ekki kemur fram í skýrslu yfir Guðjóni hvort eitt­hvað fannst í því leyni­hólfi. Mynd: Stundin

Skýrslutaka yfir föður ríkislögreglustjóra: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyldmenni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“

Menn sem grunaðir eru um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverka­árás hér á landi báru við yfirheyrslur að hálf­sjálfvirkt skotvopn í þeirra fórum væri fengið frá Guðjóni Valdimars­syni, vopnasala og föður ríkis­lögreglu­stjóra. Þá hefði Guðjón keypt þrívíddar­prentað skotvopn af einum mannanna. Guðjón sagði við skýrslu­töku að annað hvort hefðu lögreglu­menn ekki kynnt sér ættar­tengsl hans eða verið væri að reyna að koma höggi á ríkis­lögreglu­stjóra. Stundin hefur skýrsluna undir höndum.

Guðjón Valdimarsson, faðir Sigríðar Bjarkar Guðjóns­dóttur ríkis­lögreglu­stjóra og vopnasali, var í yfirheyrslum yfir mönnum sem grunaðir eru um að hafa haft hryðju­verk í undir­búningi, sagður hafa lánað frá sér hálf­sjálfvirkt skotvopn sem mennirnir höfðu undir höndum. Þá var hann einnig sagður hafa keypt þrívíddar­prentaða byssu af mönnunum og greitt fyrir það 400 þúsund krónur í reiðufé.

Þessu öllu hafnaði Guðjón stað­fastlega í skýrslu­töku hjá lögreglu, sem tekin var á heimili Guðjóns á sama tíma og húsleit fór þar fram. Fullyrt hefur verið að tugir vopna sem hann gat ekki gert grein fyrir hafi fundist við þá húsleit.

Guðjón vísaði ítrekað til dóttur sinnar, Ríkis­lögreglu­stjórans, í skýrslu­tökunni og sagði að ef lögreglu­mennirnir hefðu vitað um tengsl þeirra hefðu þeir aldrei komið á heimili hans.

„(N)ema það sé bara einhver hefndar­ráðstöfun gagnvart dóttur minni. Það er eina sem ég get séð út úr þessu, því ég hef ekkert að …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Engu líkara en hér hafi verið gripið í punginn á mafíunni
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hvernig voru öll þessi skotfæri flutt inn fleiri þúsund byssuskot framhjá tollinum?
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér er öllun lokið. Í flestum réttarríkjum er skýrslu sem tekin er af lögreglunni haldið leyndri uns réttarhöld fara fram. Hér er skýrslan gerð opinber í fjölmiðlum og það er varla hægt nema að lögreglan sjálf standi á bak við. Er það tilgangurinn að eyðilegga framburðinn þannig að ekki sé hægt að nota hann fyrir rétti? Er lögreglan að hylma yfir eitthvað? Er hún að leggja grunninn að því að maðurinn verði ekki ákærður? Niðurstöður lögreglurannsóknar eiga að koma fram við opinber réttarhöld ekki fyrr.
    Sá seki á rétt á friðhelgi svo lengi sem hann er ekki dæmdur. Það verður að fara fram rannsókn á því hverning þetta mál komst í fjölmiðla. Fjölmiðlarninr hafa enga sök - þeir eiga að birta þær upplýinga sem þeir fá.
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hljóta að vera helgustu vé mafíunnar sem eru kominn þarna upp á yfirborðið. Kókaín kafboys?_Uhuhhu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hryðjuverkaógn á Íslandi

Mest lesið undanfarið ár