900. spurningaþraut: Þemað er Biblían og Jesúa frá Nasaret

900. spurningaþraut: Þemað er Biblían og Jesúa frá Nasaret

Hér er komin þema­þraut um Biblíuna og Bibl­íu­sög­urnar, Jesú og Guð, og kannski ekki sú fyrsta.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða frá­sögn Bibl­í­unnar er lýst á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrsta Mósebók, og jafn­framt fyrsta bók Bibl­í­unnar í heild, heitir Genesis á alþjóða­málum, og lýsir því þegar Abraham og niðjar hans setj­ast að í Ísrael. Hvað heitir sú næsta — einnig á alþjóða­málum?

2.  En hvað svo sem hún heitir, um hvaða alkunnu stór­við­burði í lífi þjóð­ar­innar fjallar hún?

3.  Ísra­els­menn komu að lokum á fót ríki og kon­ungi. Fyrsti kon­ung­ur­inn hét Sál en hvað hét sá næsti?

4.  Næstu aldir voru Ísra­els­menn her­leiddir burt úr land­inu oftar en einu sinni, þar á meðal til stór­borgar einnar við Efrat-fljót sem heitir ... hvað?

5.  Í Bibl­í­unni kennir margra grasa og meðal bóka hennar eru Ljóða­ljóðin sem þykja skera sig nokkuð úr ... vegna hvers?

6.  Í hvaða bæ er Jesúa sagður hafa fæðst?

7.  Um Jesúa var sagt: „Sá kemur eftir mig sem mér er mátt­ugri og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skó­þveng hans. Ég hef skírt ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“ Hver sagði þetta?

8.  Hvað hét æðsti prest­ur­inn í Jer­úsalem á dögum Jesúa?

9.  Hátíðin sem stóð yfir þegar Jesúa var kross­festur var haldin til að minn­ast hvers?

10.  „Þótt ég tal­aði tungum manna og engla, en hefði ekki kær­leika, væri ég hljóm­andi málmur eða hvellandi bjalla.“ Þetta skrif­aði Páll post­uli í bréfi til íbúa í til­tek­inni borg. Hvaða borg?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dæmisögu Jesúa frá Nasaret er máluð upp hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Exodus.

2.  Flótta þjóð­ar­innar frá Egifta­landi.

3.  Davíð.

4.  Babýlon.

5.  Vegna þess að þar er lýst hold­legum mun­aði.

6.  Betlehem.

7.  Jóhannes skír­ari.

8.  Kaíafas.

9.  Flóttans frá Egifta­landi.

10.  Kórintu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Abraham að búast til að fórna Ísak syni sínum að kröfu Guðs.

Á neðri mynd­inni er týndi son­ur­inn kom­inn heim. Takið eftir kálf­inum!

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár