895. spurningaþraut: Lét eftir mér eina spurning um Rómarkeisara hér!

895. spurningaþraut: Lét eftir mér eina spurning um Rómarkeisara hér!

Auka­spurn­ing, sú hin fyrri:

Hér má sjá hjón nokkur ein­hvern tíma á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Hvað heita þau? Hafa verður bæði skírn­ar­nöfn beggja og ætt­ar­nafnið rétt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er breið­asti fjörður, flói, vík eða vogur á Íslandi?

2.  Þegar íslenskur ráð­herra tók við völdum í land­inu 1904 var lagt niður emb­ætti æðsta emb­ætt­is­manns Dana hér á landi. Hvað kall­að­ist sá emb­ætt­is­maður?

3.  Og hver gegndi því síð­astur manna?

4.  Nú í nóv­em­ber verður frum­sýnd kvik­myndin The Fabelm­ans þar víð­kunnur leik­stjóri fjallar undir rós um sín eigin æskuár. Næsta mynd þessa leik­stjóra á undan þess­ari var West Side Story (2021) en þar á undan Ready Player One (2018). Hann hefur líka gert myndir um Tinna, for­sögu­leg skrímsli, nas­ista, forn­leifa­fræð­inga og fleira. Hvað heitir hann?

5.  Á árunum 1811-1816 komu út fjórar skáld­sögur um líf og sam­fé­lag á Englandi sem vöktu nokkra athygli en eng­inn vissi hver höf­und­ur­inn var, því ekk­ert nafn fylgdi bók­unum. Eftir að höf­und­ur­inn lést 1817, aðeins 41 árs, komu bæk­urnar loks út undir réttu nafni og vin­sældir þeirra juk­ust hröðum skrefum og eru nú tveim öldum síðar enn í hámarki. Hvað hét þessi höf­undur?

6.  Þegar hún var aðeins þriggja ára lét faðir hennar háls­höggva móður hennar. Samt varð hún drottn­ing og öllum kunn sem slík. Hvað hét hún?

7.  Þýsk stúlka varð keis­ara­ynja í nágranna­ríki, ruddi eig­in­manni sínum úr vegi og tók sjálf öll völd í nágranna­rík­inu. Hvað hét hún?

8.  Í hvaða landi er borgin Kraká?

9.  Hver var for­seti Banda­ríkj­anna árið 1970?

10.  Róm­verska keis­ara­dæm­inu var komið á fáeinum ára­tugum fyrir upp­haf tíma­tals­ins. Margir róm­verskir keis­arar féllu fyrir morð­ingja­hendi eða í inn­an­lands­ófriði, en hvaða keis­ari féll fyrstur í bar­daga við útlenska óvini? Var það Caesar árið 44 f.Kr. — Nero árið 68 eftir Krist — Markús Árelíus árið 180 — Decius árið 251 — Kon­stant­ínus mikli árið 337?

***

Auka­spurn­ing seinni:

Myndin sýnir banda­ríska her­þyrlu í merki­legu flugi nú í febr­úar síð­ast­liðnum. Hvað þótti frétt­næmt við þetta flug? — Og svo er Sómal­íu­stig fyrir að vita hvað teg­undin heitir.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Faxaflói. Hann er nokkrum tugum kíló­metra breið­ari en Breiða­fjörður.

2.  Lands­höfð­ingi.

3.  Magnús Steph­en­sen.

4.  Spi­el­berg.

5.  Jane Austen.

6.  Elísabet 1. Eng­lands­drottn­ing.

7.  Katrín mikla.

8.  Póllandi.

9.  Nixon.

10.  Decius var það! Hann féll í orr­ustu við Gota.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru hjónin Mikhaíl og Raísa Gor­bat­sév.

Þyrlan á neðri mynd­inni er greini­lega mann­laus, enda var það frétt­næmt við flugið — þetta var fyrsta mann­lausa flug svo stórrar og öfl­ugrar þyrlur. Og hún er af gerð­inni Blawk Hawk. Til­vís­unin til Sómalíu stafar af bíó­mynd­inni Black Hawk Down frá 2001.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár