886. spurningaþraut: Tesla, strokkur, Múrmansk, levíatan og Lúsífer

886. spurningaþraut: Tesla, strokkur, Múrmansk, levíatan og Lúsífer

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá kápu á frægu tíma­riti frá 13. sept­em­ber 1954. Ég er búinn að föndra burt nafnið á tíma­rit­inu. En hvaða tíma­rit var þetta? Og svo er lár­við­ar­stig fyrir að vita hver er á mynd­inni og „takes off after an Oscar“.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í landi er borgin Múrmansk?

2.  Hver er aðal fram­leiðslu­vara fyr­ir­tæk­is­ins Tesla?

3.  Nikola Tesla var upp­finn­inga­maður sem bjó seinni hluta ævinnar í Banda­ríkj­unum. En hvað var þjóð­erni hans upp­haf­lega?

4.  Undir hvaða lista­manns­nafni er Robert Zimmermann þekkt­astur?

5.  Strokkur var not­aður til að skilja ... hvað ... frá mjólk eða öllu heldur rjóma?

6.  Hver var sjálf­kjörin for­seti Íslands árið 1992?

7. Í Bibl­í­unni er nefnt fyr­ir­brigði sem kallað er leví­atan. Hvað er Levíatan? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

8.  Í Bibl­í­unni er líka nefndur Lúsífer. Hver er það?

9.  Hvaða stytta birt­ist öllum að óvörum á loka­sek­úndum mynd­ar­innar Apa­plánetan frá 1968?

10.  Hver hafði fyrir sið að reka upp „sig­uróp karlapans“ þegar sigur vannst í miklum rimmum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rúss­landi.

2.  Raf­magns­bílar.

3.  Hann er Serbi að ætt, fæddur í Króatíu sem þá til­heyrði Aust­ur­ríska keis­ara­dæm­inu. Allt þetta má því telj­ast rétt.

4.  Bob Dylan.

5.  Smjör.

6.  Vigdís Finn­boga­dóttir.

7.  Sæskrímsli. Skrímsli eitt og sér dugar ekki, því miður.

8.  Djöf­ull­inn.

9.  Frels­is­styttan.

10.  Tarzan.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Judy Garland leik- og söng­kona á for­síðu LIFE.

Á neðri mynd­inni er Selfoss.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár