Matvælastofnun staðfestir rannsókn á meintum eldislöxum

Rík­is­stofn­un­in Mat­væla­stofn­un hef­ur stað­fest að hún sé með til með­ferð­ar rann­sókn á upp­runa laxa sem veidd­ust í Mjólká í Arnar­firði. Starfs­menn Mjólkár­virkj­un­ar skemmta sér við að kasta fyr­ir laxa í árstubbi sem renn­ur úr virkj­un­inni og hef­ur rík­is­stofn­un­in tek­ið sýni úr tólf fisk­um sem veidd­ust í sum­ar.

Matvælastofnun staðfestir rannsókn á meintum eldislöxum
Rannsókn stendur yfir Rannsókn stendur nú yfir á því hvort laxarnir sem veiddust í Mjólká séu eldislaxar eða ekki. Þetta kemur fram á heimasíðu Matvælastofnunar sem Gísli Jónsson starfar hjá sem yfirmaður fiskisjúkdóma. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkisstofnunin Matvælastofnun hefur staðfest að rannsókn er hafin á uppruna laxa sem veiddust í Mjólká í Arnarfirði í sumar. Um er að ræða tólf laxa sem starfsmenn Mjólkárvirkjunar veiddu í sumar.

Samkvæmt Steinari Jónassyni, stöðvarstjóra virkjunarinnar, litu nokkrir þessara út eins og eldislaxar. Stundin greindi frá málinu á föstudaginn en þá lá staðfesting MAST á rannsókninni á uppruna laxanna ekki fyrir.  „Við vitum ekki af hverju það er svona mikill fiskur í ánni. Okkur sýndist nú að minnsta kosti fjórir eða fimm hafi verið eldislaxar. Hann sagði: Þetta er eldi, þetta er eldi, þetta er eldi en svo á eftir að staðfesta það. Það væri ekki að veiðast svona mikið í ánni nema fyrir eldisfiskinn. Við vitum ekki hvaðan hann kemur,“ sagði stöðvarstjórinn Steinar við Stundina í síðustu viku. 

„Þetta er eldi, þetta er …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓY
    Óttar Yngvason skrifaði
    Allar litlu árnar í Arnarfirði eru dauðadæmdar af völdum stroklaxa úr sjókvíum norska eldisfyrirtækisins, sem hefur fengið öll sín eldisleyfi ókeypis frá þjóðinni.
    (Markaðsverð 10.000 tonna eldisleyfa í Arnarfirði samkvæmt síðustu viðskiptum innanlands nemur 25 milljörðum).
    Náttúruskaðinn verður aldrei bættur og þessi frétt er aðeins byrjunin á eyðingu villtra laxfiska í öllum ám landsins. Til viðbótar losar eldi 10.000 tonna
    ársframleiðslu í Arnarfirði úrgang saurs og fóðurleifa sem svarar skolpfrárennsli frá 160.000 manna byggð.
    Er þetta tilvinnandi fyrir atvinnu nokkurra skattlausra erlendra farandverkamanna, sem ráðnir eru á lágmarkstaxta í gegnum vinnumiðlun í Reykjavík og fyrir hagsmuni hluthafa, sem eru farnir að selja ókeypis eldisleyfin með ofsagróða?

    Varðandi greiningu á meintum eldislöxum, þá tekur aðeins nokkrar mínútur að greina hreistursýni í smásjá til að fá staðfest hvort um er að ræða eldislax eða villtan lax. Hvað dvelur Gísla og co. hjá MAST að framkvæma þetta og upplýsa? Það er í sjálfu sér nauðsynlegt rannsóknarefni.
    Flókin erfðagreining er ágæt til viðbótar, en það er síðari áfangi.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umdeilt frumvarp matvælaráðherra um lagareldi bíður líklega næsta þings
FréttirLaxeldi

Um­deilt frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi bíð­ur lík­lega næsta þings

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­mað­ur Pírata og vara­formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að enn sé ver­ið að ræða við hags­mun­að­ila út af lagar­eld­is­frum­varp­inu. Hann seg­ir lík­legra en ekki að frum­varp­ið bíði næsta þings. Frum­varp­ið er um­deilt og hafa mat­væla­ráð­herr­ar Vinstri grænna ver­ið gagn­rýnd­ir fyr­ir það.
Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
FréttirLaxeldi

Bú­ið að ráða nýj­an mann í starf­ið hjá MAST eft­ir inn­an­húsátök

Mat­væla­stofn­un hef­ur ákveð­ið að Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir verði nýr sviðs­stjóri yf­ir með­al ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eft­ir að Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn í starf­ið en hann hafði með­al ann­ars skrif­að grein­ar þar sem hann lýsti yf­ir stuðn­ingi við sjókvía­eldi sem at­vinnu­grein.
SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýn­ir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og tal­ar um hann eins og eign

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skil­að gagn­rýnni um­sögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráð­un­um hjá SFS er að rekstr­ar­leyf­in í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bund­in leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt ann­að í því.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
5
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár