873. spurningaþraut: Isaac M. Singer og (næstum) nafni hans

873. spurningaþraut: Isaac M. Singer og (næstum) nafni hans

Fyrri auka­spurn­ing:

Árið 1982 birt­ist Þjóð­vilj­inn við­tal við aðstand­endur nýs kvik­mynda­blaðs sem þá var nýút­komið. Rit­stjórar voru þeir Arnaldur Sig­urðs­son og ... sá sem prýðir mynd­ina hér að ofan. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í síð­ari heims­styrj­öld­inni voru fram­leiddir í miklu magni ákveðnir hlutir sem nefndir voru Liberty og þóttu gagn­ast Banda­mönnum mjög í bar­átt­unni gegn öxul­veld­unum. Hvers konar fyr­ir­bæri voru þetta? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

2.  Hvað kallar Gauti Þeyr Másson sig yfir­leitt?

3.  Hvaða fyr­ir­bæri er híjab?

4.  Hvaða bíla­fyr­ir­tæki fram­leiðir Landcruiser?

5.  En hvaða fyr­ir­tæki fram­leiðir Airbus-flug­vél­arnar?

6.  Isaac M. Singer — Banda­ríkja­maður af þýskum ættum, fæddur 1811 — stofn­aði árið 1851 fyr­ir­tæki sem full­komn­aði upp­götvun sem aðrir höfðu þegar verið komnir vel á veg með að þróa. Af því spratt reyndar mála­rekstur en upp­götvun Singers sló í gegn. Og þessi upp­götvun var ... hvað?

7.  Annar maður sem hét næstum því sama nafni og Isaac M. Singer fædd­ist tæpri öld síðar í ákveðnu Evr­ópu­landi. Hann flutt­ist reyndar til Banda­ríkj­anna 1935 af ótta við upp­gang fas­ista og Gyð­inga­hat­ara í Evrópu. Og þessi maður varð líka afreks­maður, eins og sá fyrri, þótt á list­rænu sviði væri. Hvaða við­ur­kenn­ingu eða afrek vann þessi síð­ar­nefndi karl 1978?

8.  Hvað heitir sjón­varps­stöðin sem rekin er í tengslum við Frétta­blaðið?

9.  Hver er elsti ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Íslands?

10.  Guðrún Á. Símonar var kunn fyrir elsku sína að hvaða dýrum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir stöðu­vatnið hér á mynd­inni miðri og ögn til vinstri?

***

Aðal­spurn­inga­svör:

1.  Flutn­inga­skip. Skip dugar ekki og her­skip auð­vitað alls ekki.

2,  Emmsjé Gauti.

3.  Höf­uð­skýlur múslim­skra kvenna — af öllu tagi.

4.  Toyota.

5.  Airbus.

6.  Saumavél.

7.  Árið 1978 fékk Isaac B. Singer Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Nóbels­verð­laun og bók­menntir verður að nefna.

8.  Hring­braut.

9.  Jón Gunn­ars­son.

10.  Köttum.

***

Auka­spurn­inga­svör:

Á efri mynd­inni er Gunnar Smári Egilsson.

Á neðri mynd­inni er Kaspíhaf.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár