874. spurningaþraut: Bos taurus og Bosporus

874. spurningaþraut: Bos taurus og Bosporus

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða vina­lega fyr­ir­bæri er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða dýra­teg­und hefur lat­neska fræði­heitið bos taurus?

2.  En hvaða stór­borg er við syðri enda sunds­ins Bosporus?

3.  Hvaða per­sóna Halldórs Laxness var kölluð „hið ljósa man“?

4.  Hvaða menn­ing­ar­fé­lag var stofnað í Reykja­vík 1937 og hafði þann yfir­lýsta til­gang að útbreiða menn­ing­ar­sýn vinstri manna?

5.  Eystra­salts­ríkin þrjú — Eistland, Lettland og Litháen — urðu sjálf­stæð ríki í kjöl­far fyrri heims­styrj­aldar. En hvaða ár misstu þau sjálf­stæði sitt?

6.  Í hvaða hluta Afríku býr Zulu-þjóðin?

7.  Hvað kall­ast halloween nú yfir­leitt á íslensku?

8.  Enska orðið halloween er hins vegar sam­dráttur af All Hallows' Eve. Merking þeirra orða á íslensku er ... hvað?

9.  Í hvaða landi í ver­öld­inni eru flestir fangar, bæði hlut­falls­lega og í reynd?

10.  Þegar Evr­ópu­menn fóru að kanna heim­inn á 15. öld og næstu ald­irnar, þá hittu þeir fyrir alls­konar fólk með alls­konar siði. Fólk gekk til dæmis mjög mis­jafn­lega til fara. Aðeins á einum stað gekk allt fólk þó um algjör­lega klæð­laust öllum stundum. Hvaða fólk var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver hleypur þar svo kná­lega með stöng­ina sína?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Naut­gripir.

2.  Istanbúl.

3.  Snæ­fríður.

4.  Mál og menn­ing.

5.  1940.

6.  Suð­ur­hluta Afríku.

7.  Hrekkja­vaka.

8.  Allra heil­agra kvöld, eða allra heil­agra messa.

9.  Banda­ríkj­unum.

10.  Frum­byggjar Ástralíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er skrímslið úr geim­mynd­unum um Alien.

Á neðri mynd­inni er stang­ar­stökkvar­inn Sergei Bubka.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár