Jörðin gæti borið þrjú tungl! En hvar eru hin tvö?

Jörðin gæti borið þrjú tungl! En hvar eru hin tvö?
Þrjú tungl. Myndin er að sjálf­sögðu til­bún­ingur og í raun má ætla að þótt Jörðin hefði þrjú tungl af svip­aðri stærð og Máninn, þá hlytu þau að vera í mjög mis­mun­andi fjar­lægð frá Jörðu og því virð­ast nokkuð mis­stór.

Föru­nautur okkar Jarð­ar­búa á enda­lausri hring­ferð okkar um sól­kerfið, Máninn, er svo gam­al­kunnur og traustur félagi að það er erfitt að ímynda sér hann eitt­hvað öðru­vísi og hvað þá bara einn af mörgum. Við vitum að stóru gas­risarnir utar í sól­kerf­inu hafa tugi tungla sér til fylgdar — 80 við Júpíter þegar síð­ast frétt­ist, 83 við Satúrnus — en tunglið okkar virkar svo pass­legt og nákvæm­lega rétt að allt hlyti að fara úr skorðum ef okkur bætt­ist annað tungl, sam­bandið okkar og Mánans myndi vart þola slíkt og þvíum­líkt; bæði Jörð og tungl færu út af spor­inu og myndu enda­send­ast stjórn­laust eitt­hvað út í geim, og kannski kút­velt­ast inn í sól­ina og brenna þar upp.

Þessu trúðu vís­inda­menn líka lengi. Hlutföll Jarðar og Mána væru svo hár­rétt að Jörðin myndi ekki undir nokkrum kring­um­stæðum þola annað tungl.

En nú er búið að mæla þetta og í ljós kemur að Jörðin gæti vel þolað þrjú tungl á stærð við Mánann okkar án þess að allt færi í rugl í sam­band­inu.

Og ef þau væru minni gætu tunglin verið allt að sjö.

Þá væri nú sjón að sjá á næt­ur­himn­inum!

Nið­ur­stöður vís­inda­rann­sókna um þetta birt­ust nýlega á vef­síð­unni Montly Notices of the Astonomical Society. Þau Suman Satyal, Billy Quarles og Marialis Rosario Franco reikn­uðu nákvæm­lega út þyngd, þyngd­ar­afl, hraða og brautir bæði Jarðar, Sólar og Tungls 3.000 ár aftur í tím­ann og þetta var nið­ur­staðan.

Svona er talið nokkuð víst að tunglið hafi mynd­ast.Þegar sól­kerfið var nýorðið til og Jörðin enn gló­andi eða fyrir 4,5 millörðum ára rakst á hana önnur pláneta á stærð við Mars. Jörðin lifði þetta ógur­lega högg af en hin plánetan tætt­ist í sundur og grjót­leifar úr henni söfn­uð­ust á end­anum saman í Mánann sem hátt á himni skín.

Jörðin gæti haft þrjú tungl á stærð við Mánann sér að skað­lausu. Ef tunglin væru fjögur færu brautir bæði Jarðar og tungl­anna fyrr en síðar að aflag­ast og að lokum færi allt í rugl.

Þessi rann­sókn var ekki bara gerð til að svala for­vitni þre­menn­ing­anna. Hún hefur líka heil­mikið gildi, bæði til að hjálpa okkur að skilja upp­haf sól­kerf­is­ins okkar, og líka við rann­sóknir á þeim sól­kerfum ann­arra sól­stjarna sem við erum nú farin að skoða úr mik­illi fjar­lægð.

Þre­menn­ing­arnir bjuggu til líkön með þremur stærðum tungla. Eitt var tunglið okkar, annað var á stærð við dverg­plánet­una Plútó (sem einn sjötti hluti Mánans okkar að þyngd) og það þriðja var á stærð við smá­st­irnið Ceres (um það bil einn hund­rað­asti af tungl­inu okkar).

Nið­ur­staðan var sú að Jörðin gæti afborið fjögur tungl á stærð við Plútó og hvorki meira né minna en sjö smátungl á stærð við Ceres.

Nú þegar við vitum þetta er hálf­gerð synd og skömm að við skulum ekki hafa nema eitt tungl — úr því við gætum greini­lega haft fleiri.

En þeim fjölgar varla úr þessu.

***

Hér fyrir neðan má sjá stærðir nokk­urra tungla í sól­kerf­inu okkar. Máninn okkar er fimmta stærsta tunglið á eftir Ganý­medes, Callistó og Íó við Júpíter og Titan við Satúrnus. Í miðið hægra megin má sjá dverg­plánet­una Plútó og þar fyrir neðan og enn lengra til hægri er Ceres. Við gætum sem sé haft sjö slík tungl á himni.

Hér er svo snot­urt lítið Youtube-mynd­band sem sýnir hvernig Máninn mynd­að­ist:

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár