Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi

Einu og hálfu ári frá alþing­is­kosn­ingum hafa fjórir áhrifa­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki horfið af þingi og til ann­arra starfa. Fyrr­ver­andi for­ysta er öll horfin, nú þegar flokk­ur­inn er í stjórn­ar­and­stöðu. Góður árangur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum gefur flokknum byr undir nýjum leið­togum í sveit­ar­fé­lögum og á lands­vísu.

Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
Sendi­herra, lobbý­isti, bæj­ar­stjóri og MPA Fjögur úr þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem öll hafa gegnt emb­ættum í for­ystu flokks­ins, hafa horfið til ann­arra starfa á kjör­tíma­bil­inu.

Fjórir af þeim fjórtán fram­bjóð­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem náðu kjöri sem alþing­is­menn í kosn­ing­unum 30. nóv­em­ber 2024 hafa þegar horfið til ann­arra starfa.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk sína verstu útkomu í kosn­ing­unum frá stofnun, 19,4% atkvæða á lands­vísu og 14 þing­menn. Þetta var í fyrsta sinn sem flokk­ur­inn fór undir 20% og flokk­ur­inn þurfti að sætta sig við að verða í stjórn­ar­and­stöðu í aðeins annað sinn á þess­ari öld.

Nú síð­ast til­kynnti Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir um að hún væri hætt á þingi en hún var talin von­ar­stjarna flokks­ins um skeið. Hún gegndi emb­ætti rit­ara flokks­ins 2015 til 2019 og varð dóms­mála­ráð­herra árið 2019, þá aðeins 29 ára gömul. Hún bauð sig svo fram til for­manns í árs­byrjun 2025 en tap­aði naum­lega fyrir Guðrúnu Haf­steins­dóttur. Eftir að nið­ur­staðan lá fyrir til­kynnti hún að hún ætl­aði …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár