Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?

Þing­nefndin sem fjall­aði um nýsam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ingar og hug­myndir að minnst tíu öðrum leiðum sem hægt væri að fara en að setja börn í lokað úrræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ingin virð­ist klofin í afstöðu sinni til máls­ins þó að þinglið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
Þrýst­ingur Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra, er undir meiri þrýst­ingi frá flokks­fé­lögum en hún hefur áður verið. Allt vegna sam­þykktar flokks­ins og brott­far­ar­stöð. Mynd: Golli

Sam­fylk­ingin virð­ist klofin gagn­vart nýsam­þykktum lögum um brott­far­ar­stöð fyrir hæl­is­leit­endur sem stendur til að senda úr landi. Athygli vakti þegar opið bréf fjölda áhrifa­fólks í flokknum birt­ist á Vísi undir yfir­skrift­inni „Ekki í okkar nafni“.

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar virð­ist þó standa heils­hugar á bak við lögin, og bendir á í umræðum við félaga sína að þau komi í veg fyrir að börn séu aðskilin for­eldrum sínum áður en senda á þau úr landi. Eitthvað sem hafi tíðkast í fyrri fram­kvæmd. 

Meðal þeirra sem gagn­rýnt hafa Sam­fylk­ing­una fyrir lögin er Oddný Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins og ráð­herra í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, og Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra úr rík­is­stjórn Geirs Haarde. 

Ein þeirra sem svarar þeim báðum á sam­fé­lags­miðlum er Margrét Sigrún Björns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, sem spyr: hvað eiga stjórn­völd að gera kon­kret gagn­vart hæl­is­leit­endum?

Bentu á minnst tíu aðrar leiðir

Fjöl­margir umsagn­ar­að­ilar …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár