„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“

Stofn­andi Sós­í­alista­flokks­ins, Gunnar Smári Egilsson, segir nýjan for­mann flokks­ins, Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son, reka fólk úr flokknum án heim­ildar og að aðal­fund mætti kæra til lög­reglu. „Ætti Sig­mundur Davíð enn að fá að mæta á flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins?“ spyr nýr for­maður.

„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“
Leið­togar Sós­í­alista­flokks­ins Stofn­andi flokks­ins, Gunnar Smári Egilsson, segir nýkjör­inn for­mann, Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son, reka fólk úr flokknum án heim­ildar.

Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi Sós­í­alista­flokks­ins, seg­ist ekki þekkja neinn sem fékk boð á aðal­fund Sós­í­alista­flokks­ins, sem fram fór um helg­ina. Fólk úr fyrri stjórn gagn­rýnir að fund­ur­inn hafi ekki verið aug­lýstur opin­ber­lega en ekk­ert mátti finna um hann á vef­síðu eða sam­fé­lags­miðla­síðum flokks­ins áður en hann fór fram.

„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“ skrifar Gunnar Smári í spjall­hóp­inn Rauða þráð­inn á Facebook. „Ég þekki engan í flokknum sem fékk boð á fund­inn, sem hvergi var aug­lýstur. Þetta er farið að líta út eins og rán ein­hverrar klíku á eignum almenns félags. Kannski ætti frekar að kæra þetta til lög­reglu en félaga­skrár.“

Við færslu Gunnars Smára segj­ast flokks­menn ýmist hafa fengið fund­ar­boð eða ekki, en af skjá­skotum má ráða að boðað hafi verið til fund­ar­ins, sem fram fór á Norð­ur­landi 6. til 7. júní, 22. maí og ítrekun send fimm dögum síðar.

Sara Stef Hild­ar­dóttir, fyrrum stjórn­ar­maður, segir fund­inn hafa verið hald­inn með leynd, en í sam­tali við Vísi sagði hún hóp flokks­fólks hyggj­ast kæra fund­inn til Fyr­ir­tækja­skrár og hugs­an­lega fara með málið lengra.

Nýkjör­inn for­maður flokks­ins, Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son, segir hins vegar við Heim­ild­ina að aðal­fundur hafi verið kynntur á félags­fundum flokks­ins og fund­ar­boð sent í tölvu­pósti á alla félaga flokks­ins og sömu­leiðis ítrekun. „Fund­ur­inn var ekki leyni­legri en svo að ger­vallt félaga­talið fékk að vita af fund­inum með lög­legum og eðli­legum fyr­ir­vara og allir áhuga­samir félagar fengu kynn­ingu líka á félags­fundum,“ segir hann.

„Eins og gefur að skilja og er öllum morg­u­n­aug­ljóst þá gengur það ekki upp að fólk sem býður sig fram gegn Sós­í­alista­flokknum með öðru fram­boði, gegnir trún­að­ar­störfum fyrir fram­boð sem býður fram gegn Sós­í­alista­flokknum og með mjög opnum og alvar­legum hætti grefur undan flokknum, hendir flokknum út úr eigin hús­næði og vinnur með ráðum og dáðum og með opin­ber­lega yfir­lýstum hætti að því að granda Sós­í­alista­flokknum, að það fólk sé áfram félagar í flokknum,“ segir hann enn­fremur í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar. „Það er aug­ljós hags­muna­á­rekstur. Í öllum eðli­legum stjórn­mála­flokkum gilda lög og reglur gegn slíku.“

Flokksmenn nú hjá VG og Miðflokki

Vísar hann þar í átök innan flokks­ins í byrjun sum­ars í fyrra þegar ný stjórn var kjörin og Gunnar Smári missti sæti sitt í stjórn. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi flokks­ins og kjör­inn póli­tískur leið­togi hans um skeið, bauð sig fram undir merkjum Vinstr­is­ins til borg­ar­stjórnar í vor.

Deilur stóðu einnig um félagið Vor­stjörn­una, fjöl­mið­il­inn Sam­stöð­ina og hús­næði flokks­ins við Bolholt 6, sem flokknum var vísað úr en hann leigir nú rými af MÍR, Menn­ing­ar­tengslum Íslands og Rúss­lands, við Hverf­is­götu.

„Er Þor­gerður Katrín enn höfð með í ráðum á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins?“

„Svo stóð hún [Sanna] og Sara Hild­ar­dóttir fyrir þeim gjörn­ingi að henda Sós­í­alista­flokknum út úr hús­næði sínu, mættu síðar á fund flokks­ins með öskur­há­vaða og stofn­uðu loks mót­fram­boð gegn flokknum,“ skrifar Jón Ferd­ín­and. „Þætti ein­hverjum eðli­legt að Guðrún Haf­steins­dóttir myndi kæra lands­fund Sam­fylk­ing­ar­innar ef hún fengi ekki að vera þátt­tak­andi í honum? Ætti Sig­mundur Davíð enn að fá að mæta á flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins? Er Þor­gerður Katrín enn höfð með í ráðum á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins? Þá má nefna að meðal fyrrum félaga sem eru ekki lengur í félaga­tali Sós­í­alista­flokks­ins eru ein­stak­lingar sem gegna virkum trún­að­ar­störfum fyrir VG og einn starf­andi þing­maður Mið­flokks­ins.“

Hann hvetur fólk til að hætta árásum á starf Sós­í­alista­flokks­ins. „Við erum engir óvinir né and­stæð­ingar, heldur sam­herjar í póli­tískum skoð­unum allra jafna, það er því bara inni­lega miður að þau tali í orði um sam­stöðu fyrir kosn­ingar en hegði sér svo með allt öðrum hætti að þeim loknum. Sós­í­alista­flokkur Íslands óskar hins vegar Söru og Sönnu og þeirra hópi alls hins besta og vel­farn­aðar í sínum störfum fyrir Vor til Vinstri og Vinstrið,“ skrifar Jón Ferd­ín­and.

Aldrei verið skráður í annan flokk

Skilaboð Jóns Ferd­ín­ands voru sömu­leiðis birt sem skoð­anapist­ill hjá Mannlíf í dag og deilir Gunnar Smári honum sömu­leiðis í hópnum Rauði þráð­ur­inn.

„Þarna kemur fram að nýr for­maður Sós­í­alista­flokks­ins rak fólk úr flokknum án þess að hafa til þess nokkra heim­ild, sendi ekki fund­ar­boð á aðra en þá félaga sem voru honum þókn­an­legir,“ skrifar Gunnar Smári.

„Magnað að svona lið skuli bjóða sig fram til að vinna fyrir almenn­ing“

„Hann segir að það sé jafn frá­leitt að senda mér boð á aðal­fund flokks­ins, þar sem ég hef verið skráður félagi frá upp­hafi og aldrei verið skráður í eða unnið fyrir annan flokk, og að boða Guðrúnu Haf­steins­dóttur á aðal­fund Sam­fylk­ing­ar­innar. Magnað að svona lið skuli bjóða sig fram til að vinna fyrir almenn­ing, til­búið a sveigja allar reglur að eigin þörfum. Og svona líka ánægður með sig yfir þessu öllu, að springa úr monti.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Sýnist vinnubrögðin vera sömu og Gunnar Smári notaði til að koma sjálfum sér fyrir í röðum fólks , sem hann skrifar síðan séu fyrir sér innan Sósíalista ?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár