„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“

Fram­kvæmda­stjóri UNICEF segir ótækt að börn séu frels­is­svipt fyrir það eitt að vera útlend­ingar. Önnur úrræði þurfi að virka til þess að brott­far­ar­mið­stöð verði aldrei notuð til að vista börn.

„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“
Birna Þór­ar­ins­dóttir Fram­kvæmda­stjóri UNICEF segir miður að samn­ingum við sveit­ar­fé­lög um þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hafi verið sagt upp.

„Þetta er orðið að lögum og núna er verk­efni stjórn­valda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað, eins og þau segja,“ segir Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UNICEF, um ný lög um brott­far­ar­mið­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. „Það verður að vera mjög virkt eft­ir­lit með þess­ari starf­semi frá fyrsta degi.“

Með lög­unum verður stjórn­völdum heim­ilt að vista umsækj­endur um alþjóð­lega vernd tíma­bundið í brott­far­ar­stöð til þess að tryggja að þeir verði á staðnum þegar vísa á þeim úr landi. Heimilt verður að vista börn í brott­far­ar­stöð­inni þó að ákvæði hafi verið bætt við í með­ferð þings­ins um að barna­fjöl­skyldur fái afmörkuð rými í henni.

UNICEF á Íslandi er íslensk lands­nefnd Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í umsögnum stofn­un­ar­innar um málið á Alþingi kom fram að afstaða hennar sé að börn skuli aldrei vistuð í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár