Deilt um frelsissviptingu barna í brottfararstöð

Brott­far­ar­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd mun rísa eftir sam­þykkt laga á Alþingi rétt í þessu. Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir að leyfa frels­is­svipt­ingu barna með lög­unum. Að öðru leyti var nokkur sam­hljómur um málið á þingi.

Deilt um frelsissviptingu barna í brottfararstöð
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir Frumvarp dóms­mála­ráð­herra um brott­far­ar­stöð var sam­þykkt á Alþingi í dag. Mynd: Golli

Frumvarp Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra um brott­far­ar­stöð var sam­þykkt eftir þriðju umræðu á Alþingi í dag.

Með lög­unum verður stjórn­völdum heim­ilt að vista umsækj­endur um alþjóð­lega vernd tíma­bundið í brott­far­ar­stöð „þegar nauð­syn­legt er að tryggja að við­kom­andi verði á staðnum þegar hann á að fara af landi,“ eins og Þorbjörg Sigríður lýsti lög­unum í færslu á Facebook í dag.

„Úrræðið er hugsað sem síð­asta úrræði, notað þegar væg­ari leiðir duga ekki,“ skrif­aði ráð­herra. „Sam­bæri­leg úrræði eru til á öllum Norð­ur­löndum og í Schengen-ríkjum. Frum­varpið er unnið að norskri fyr­ir­mynd og með því er brott­vís­un­ar­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins inn­leidd að fullu. Í dag er fram­kvæmdin sú að fanga­klefar eru nýttir í þessum til­vikum. Sú leið er harka­legri en það sem frum­varpið leggur til. Það er ekki svo að allir sem fá synjun um alþjóð­lega vernd verði vistaðir í brott­far­ar­stöð. Í flestum til­vikum virðir fólk nið­ur­stöðu stjórn­valda og þiggur aðstoð við að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár