Druslugangan snýr aftur á laugardag: „Við finnum mikinn meðbyr“

Druslu­gangan verður gengin á laug­ar­dag eftir tveggja ára fjar­veru í Reykja­vík, Borg­ar­firði eystri, Húsavík og Sauð­ár­króki. Þema göng­unnar í ár er „valda­ó­jafn­vægi“ og er þá verið að vísa til MeToo umræðu síð­ustu miss­era.

Druslugangan snýr aftur á laugardag: „Við finnum mikinn meðbyr“
Druslu­gangan Snýr aftur á laug­ar­dag í fyrsta sinn síðan 2019. Mynd: Pressphotos

Druslu­gangan verður á laug­ar­dag, 23. júlí, eftir tveggja ára hlé vegna far­ald­urs­ins. Gengið verður frá Hall­gríms­kirkju klukkan 14 niður á Aust­ur­völl þar sem efnt verður til sam­stöðu­fundar með ræðu­haldi og tón­list­ar­flutn­ingi. Ræður halda Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi og Inga Björk Mar­grétar Bjarna­dóttir aktí­visti, en tón­list flytja Reykja­vík­ur­dætur, Kristín Sesselja og Gugusar.

Það er þó ekki aðeins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem gangan verður gengin því sama dag fer hún einnig fram á Borg­ar­firði eystri, á Húsavík og á Sauð­ár­króki.

„Við finnum fyrir því að fólk er reið­ara, komið með nóg og til­búið í slag­inn“

Inga Hrönn Jóns­dóttir, einn skipu­leggj­enda göng­unnar, segir að þar sem þrjú ár séu frá síð­ustu göngu hafi skipu­leggj­endur staðið frammi fyrir margs­konar áskor­unum. „Við höfum tekið inn alveg nýtt teymi og fengið fersk sjón­ar­mið inn í verk­efnið,“ segir hún. „Helsta fjár­öfl­unin okkar er varn­ing­ur­inn sem við seljum í göng­unni og síð­ustu tvö ár höfum við ekki haft tæki­færi til þess. Svo við settum af stað Karolina Fund söfnun sem fór fram úr okkar björt­ustu vonum.“

„Valdaójafnvægi“ þema göngunnar

Druslu­gangan byrj­aði upp­haf­lega árið 2011 í Kanada vegna ummæla lög­reglu­manns um að konur þyrftu bara að sleppa því að klæða sig eins og druslur til þess að forð­ast kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Í byrjun var gangan því þannig að konur mættu í „druslu­legum“ fötum og gengu saman til að mót­mæla þessum ummælum.

Í ár er þema göng­unnar „valda­ó­jafn­vægi“ og er þá verið að vísa í MeToo umræðu síð­ustu miss­era. „Það er búin að vera rosa­lega mikil umræða í sam­fé­lag­inu og þessi MeToo bylgja hefur staðið yfir tölu­vert lengi,“ segir Inga Hrönn. „Við finnum fyrir því að fólk er reið­ara, komið með nóg og til­búið í slag­inn. Við höfum fengið skila­boð frá fólki sem vill taka þátt og aðstoða við fram­kvæmd göng­unnar. Við finnum mik­inn með­byr frá sam­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár