794. spurningaþraut: Bófar, þingmenn, lögfræðingar, hljómsveit eða eyjar?

794. spurningaþraut: Bófar, þingmenn, lögfræðingar, hljómsveit eða eyjar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Ég ætla ekk­ert að fara í felur með hvað það góða fólk heitir sem sjá má á sam­settu mynd­inni hér að ofan. Þau heita: Árelía Eydís Guð­munds­dóttir, Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son og Magnea Gná Jóhanns­dóttir. Spurn­ingin er hins vegar: Við hvað starfa þau nú upp á síðkastið? — og hér þarf svarið að vera þokka­lega nákvæmt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  SÁÁ komu til sög­unnar 1977. Fyrir hvað stóð skamm­stöf­unin?

2.  Hver fékk um dag­inn skömm í hatt­inn fyrir að segja mömmu sinni leynd­ar­mál?

3.  Hvað heitir fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins í fót­bolta sem hefur brátt keppni á Evr­ópu­meist­ara­móti kvenna?

4.  Skrímsli eitt ógur­legt nefnd­ist Mínótárus. Hvernig var það útlits?

5.  Hvar hélt Mínótárus til?

6.  Í hvaða dal er hinn eini sanni Hraun­drangi?

7.  Undir drang­anum er bær­inn Hraun og hver fædd­ist þar, frægastur karla?

8.  Haraldur Franklín Magnús er um þessar mundir einn helsti afreks­maður Íslands í ... ja, hverju?

9.  Í hvaða bæ hefur íþrótta­fé­lagið HK aðsetur?

10.  Hvað þýðir nafnarunan Crosby, Stills, Nash og Young?  Er það: Eyjar norður af strönd Kanada? — Helstu bófar og aðstoð­ar­menn Al Capone á bann­ár­unum í Chicago? — Hljóm­sveit á hippa­tím­anum? — Lög­fræði­stofa sem kom við sögu í Panama-skjöl­unum? — Þingmenn breska Íhalds­flokks­ins sem lýst hafa and­stöðu við Boris Johnson?

***

Seinni auka­spurn­ing: Laust fyrir árið 800 var framið á þessum stað ansi hrotta­legt ofbeld­is­verk, sem síðan hefur verið talið hafa boðað nýja og verri tíma á stóru svæði. Hvað heitir þessi hnar­reisti staður?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Samtök áhuga­fólks um áfeng­is­vand­ann. Nú munu sam­tökin heita Samtök áhuga­fólks um áfengis- og vímu­efna­vand­ann, en áfeng­is­vand­inn dugir í þetta sinn.

2.  Yfir­maður dönsku leyni­þjón­ust­unnar. Raunar var um að ræða leyni­þjón­ustu danska hers­ins en óþarfi að taka það fram.

3.  Sara Björk.

4.  Nauts­höfuð á manns­skrokki.

5.  Á Krít.

6.  Öxnadal.

7.  Jónas Hall­gríms­son.

8.  Golfi.

9.  Kópavogi.

10.  Hljóm­sveit á hippa­tím­anum.

Fjórir kátir félagar

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni eru þrír nýkjörnir borg­ar­full­trúar í Reykja­vík, þau sem náðu kjöri af lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjöl­far vin­sælda Einars Þor­steins­sonar. Nefna verður Fram­sókn­ar­flokk­inn; borg­ar­full­trúar almennt dugar ekki.

Á neðri mynd­inni er klaustrið Lind­is­farne á strönd Norður-Englands en nor­rænir vík­ingar réð­ust á klaustrið 793 og er atburð­ur­inn tal­inn marka upp­haf vík­inga­aldar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár