795. spurningaþraut: Hvað er Danmörk stór hluti Íslands?

Fyrri auka­spurning:

Af hverjum er — eða öllu heldur var — þessi stytta?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvað er stærst Norður­landanna?

2.  En þá næst stærst?

3.  Um það er hins vegar engum blöðum að fletta að Danmörk er minnst Norður­landanna (ef Grænland er ekki talið með, vitanlega). En hvað telst Danmörk vera — svona nokkurn veginn — mörg prósent af Íslandi? Er Danaveldi 4 prósent af Íslandi — 24 prósent — 44 prósent — 64 prósent — eða 84 prósent?

4.  Hvað er unnið úr jurt þeirri sem heitir á latínu Saccharum officinarum?

5.  Ef marka má nýjustu tölur eru flest stærstu flugfélög heimsins annaðhvort bandarísk eða kínversk. Stærð merkir hér flugflota. En hvað er stærsta flug­félagið sem er hvorki skráð í Banda­ríkjunum né Kína?

6.  Hver afneitaði meistara sínum þrisvar áður en haninn gól tvisvar?

7.  „God save the queen / The fascist regime / They made you a moron / A potential H bomb.“ Hvaða hljómsveit sendi drottningu einni þessa kveðju?

8.  Árið 1957 náði Hulda Jakobs­dóttir ákveðnum starfs­frama, fyrst kvenna á Íslandi. Hvaða starf tók hún að sér?

9.  En hvar?

10.  Hvað kallast sá bóndi sem oftast kemur við sögu í Andrésblöðunum?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er þetta — fyrir allmörgum árum?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Svíþjóð.

2.  Noregur.

3.  Danmörk erum 44 prósent af Íslandi.

4.  Sykur.

5.  Ryanair. Sérfræðingur minn í flugvélum hefur sýnt mér fram á að hér var ég með rangt svar — líklega verið að vinna með úreltan upplýsingar. En það er semsagt Ryanair sem er rétt.

6.  Pétur postuli.

7.  Sex Pistols.

8.  Bæjar­stjóri.

9.  Kópavogi.

10.  Amma Önd.

***

Svör við auka­spurningum:

Styttan var af Búdda en var sprengd í loft upp af Talíbönum í Afganistan.

Neðri myndin er af Boris Johnson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár