783. spurningaþraut: Paul McCartney er áttræður í dag. Spurt er um hann!

783. spurningaþraut: Paul McCartney er áttræður í dag. Spurt er um hann!

Þessi þraut er helguð Paul McCartney sem heldur upp á átt­ræð­is­af­mælið sitt í dag.

Fyrri auka­spurn­ing:

Paul hefur vit­an­lega hitt fjöld­ann allan af frægu fólki gegnum tíð­ina. Hvað heitir konan sem hann hefur hitt hér?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg fædd­ist Paul McCartney?

2.  Í hvaða stjörnu­merki er hann?

3.  Samstarf þeirra John Lennons hófst þegar Lennon bauð honum að ganga í hljóm­sveit­ina: Beatles — Johnny and the Moondogs — The Silver Beatles — The Quarrymen?

4.  Hvað af eft­ir­töldum Bítla­lögum er EKKI eftir Paul McCartney: Hey Jude — Let It Be — Love Me Do — Lucy in the Sky With Diamonds — Penny Lane — Yester­day. 

5.  Paul var og er mjög fjöl­hæfur mús­í­k­ant en hvað var hans aðal hljóð­færi í Bítlunum?

6.  Á löngu tíma­bili var heldur illt á milli Pauls og konu eins af félögum hans í Bítlunum, en þau hafa fyrir löngu samið frið. Hver er sú kona?

7.  Hvað hét hljóm­sveitin sem Paul stofn­aði og rak eftir veru sína í Bítlunum?

8.  Sú hljóm­sveit gaf út afar vin­sæla plötu, lík­lega þá vin­sæl­ustu sem Paul hefur átt þátt í síðan á Bítla­dög­unum. Platan heitir Band on the ... hvað?

9.  Paul á fimm börn en kunn­ast þeirra er dóttirin Stella sem hefur getið sér gott orð sem ... hvað?  

10.  Paul hefur sungið dúetta með mörgum frægum stjörnum. En með hverjum af þessum fimm hefur hann EKKI gefið út sér­stakan dúet: Elvis Costello — Michael Jackson — Elton John — Kanye West — Stevie Wonder?

Svo er hér í boði sér­stakt lár­við­ar­stig: Paul er seinna skírn­ar­nafn afmæl­is­barns­ins af tveimur, en hann hefur aldrei notað það fyrra. Hvaða nafn er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá umslagið af einni sóló­plötu Pauls. Hvað heitir sú?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Liverpool.

2.  Tví­burunum.

3.  The Quarrymen.

4.  Lucy in the Sky With Diamonds.

5.  Bassi.

6.  Yoko Ono.

7.  Wings.

8.  Run.

9.  Fata­hönn­uður.

10.  Ótrúlegt nokk hefur Paul aldrei gefið út dúett með Elton John, þótt þeir munu hafa sungið Hey Jude saman á tón­leikum. 

Og svarið við lár­við­ar­spurn­ing­unni:

Afmæl­is­barnið heitir fullu nafni James Paul McCartney.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Paul með Lindu Eastman sem varð konan hans.

Á neðri mynd­inni er umslagið utan um RAM.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár