782. spurningaþraut: Til lukku með daginn, Íslendingar og gestir allir!

782. spurningaþraut: Til lukku með daginn, Íslendingar og gestir allir!

Á þessum þjóð­há­tíð­ar­degi er þessum spurn­ingum hér enn ósvarað!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir höndin sem við sjáum á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét fyrsta kona heims­ins sam­kvæmt nor­rænni goða­fræði?

2.  En karl­inn?

3.  Goðsagnir eru sumar ansi skyldar. Í goð­sögum Grikkja segir m.a. frá karli að nafni Devka­líon en segja má að hann eigi sér sam­svörun í gyð­ing­legum goð­sögum. Devka­líon er nefni­lega hinn gríski ... hver?

4.   Á hvaða óvenju­lega stað í Reykja­vík er þing­mað­ur­inn Tryggvi Gunn­ars­son graf­inn 1917?

5.  Hvaða heims­fræga íþrótta­keppni hefur verið haldin árlega í Frakk­landi frá 1903 nema á árum heims­styrj­ald­anna tveggja?

6.  Hvaða víð­fræga bygg­ing er í borg­inni Agra á Indlandi?

7.  Árið 1953 dó aðeins 29 ára gam­all einn róm­að­asti country-söngv­ari Banda­ríkj­anna og þar með heims­ins. Hann hafði farið afar illa með sig af drykkju og dópi en í hugum þeirra sem unna country-tón­list er hann öllum enn í fersku minni. Hvað hét hann?

8.  Í hvaða inn­hafi er Borg­und­ar­hólmur?

9.  Skotar hugsa gjarnan til sjálf­stæðis eins og við vitum. En hversu margir eru íbúar Skotlands? Eru þeir 1,4 millj­ónir — 5,4 millj­ónir — 10,4 millj­ónir — 15.4 millj­ónir — 20,4 millj­ónir, eða 25,4 millj­ónir?

10.  Christian Griepen­kerl hét maður, þýskur mál­ari fæddur 1839. Um miðjan aldur gerð­ist hann pró­fessor við lista­há­skóla í borg einni og varð áhrifa­mik­ill kenn­ari. Hversu áhrifa­mik­ill hann var vissi þó eng­inn fyrr en löngu eftir að hann dó 1916. Hvert er til­kall Griepen­kerls til frægðar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fólkið á mynd­inni hér að neðan?

Þið verðið að sjálf­sögðu að hafa bæði nöfnin rétt!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Embla.

2.  Askur.

3.  Nói.

4.  Í Alþing­is­garð­inum.

5.  Tour de France hjól­reiða­keppnin.

6.  Taj Mahal.

7.  Hank Williams.

Hank Williams

8.  Eystra­salti.

9.  Skotar eru 5,4 millj­ónir.

10.   Hann hafn­aði umsókn Adolfs Hitlers í listaka­demíu Vín­ar­borgar — og það tví­vegis. Ef Hitler hefði fengið tæki­færi til að ein­beita sér að list­ferli sínum hefði margt farið öðru­vísi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fullt hús.

Á neðri mynd­inni eru Krist­björg Kjeld og Gunnar Eyj­ólfs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár