781. spurningaþraut: Leikari á hlaupum!

Auka­spurn­ingar:

Hvaða vin­sæla íslenska hljóm­sveit er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver leikur eina hlut­verkið í leik­riti sem var frum­sýnt fyrir fáeinum mán­uðum og felur í sér að leik­ar­inn er á hlaupum alla sýn­ing­una?

2.  Hver er stærsta eyjan sem telst til Evrópu?

3.  Rússinn Mikhaíl Sholok­hov fékk einu sinni Nóbels­verð­laun og þá sér­stak­lega fyrir skáld­sögu sem heitir Lygn streymir ... hvaða á?

4.  Reiknað hefur verið út að allur lífmassi Jarðar — allar lif­andi verur af öllu tagi — vegi 550 gígatonn. Hversu mörg gígatonn af því er dýr, það er að segja ekki jurtir? Eru dýrin 2 gígatonn, 12 gígatonn, 20 gígatonn, 32 gígatonn eða 200 gígatonn?

5.  Cassius Clay hét maður en hann tók sér um síðir annað nafn, sem sé ...?

6.  Jón Gnarr hefur skrifað heil­mikið um upp­vaxt­arár sín og þar á meðal sam­bandið við föður sinn. Hann full­yrðir til dæmis að faðir hans hafi goldið þess í starfi að vera ekki Sjálf­stæð­is­maður, því honum hafi verið neitað um fram­gang vegna þess. Við hvað fékkst faðir Jóns?

7.  Hvar á land­inu er Hornvík, nokkuð nákvæm­lega?

8.  Hvað eru Nóbels­verð­laun veitt í mörgum flokkum alls?

9.  Hver er sá fugl sem getur flogið aftur á bak og jafn­vel á hvolfi?

10.  Hver samdi lagið Rhapsody in Blue?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er önnur hljóm­sveit, öllu eldri og útlensk. Hún var lengi meðal hinna vin­sæl­ustu í heimi. Hvað nefndi hún sig?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gísli Örn.

2.  Bretland. Grænland telst til Ameríku þótt Danmörk sé Evr­ópu­ríki.

3.  Don.

4. Dýrin eru aðeins 2 gígatonn. 

5.  Muhammed Ali.

6.  Lög­reglu­maður.

7.  Á Horn­ströndum á Vest­fjörðum.

8.  Sex.

9.  Kólíbrí­fugl.

10.  George Gershwin.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Of Monsters and Men.

Á neðri mynd­inni er Pink Floyd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár