784. spurningaþraut: Litla frænka Soffíu frænku, og Ursula von der Leyen

784. spurningaþraut: Litla frænka Soffíu frænku, og Ursula von der Leyen

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá áströlsku leikkon­una Margot Robbie þar sem hún ærsl­ast í tit­il­hlut­verki bíó­myndar sem verður frum­sýnd á næsta ári en er þegar farin að vekja nokkra athygli. Hvað skyldi sú per­sóna heita sem Robbie leikur í þess­ari mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða Evr­ópu­landi er borgin Þessa­lon­ika?

2.  Árið 1810 var 18 ára aust­ur­rísk prinsessa látin gift­ast rúm­lega fer­tugum karli af því það hent­aði for­eldrum hennar póli­tískt. Prinsess­unni Maríu Lovísu leist ekki á blik­una en nokkuð óvænt, þá reynd­ist hjóna­bandið ást­ríkt þótt ekki stæði það lengi. Hver var eigin­að­ur­inn?

3.  Ursula von der Leyen hefur verið for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins und­an­farin þrjú ár. Hverrar þjóðar er hún?

4.  Forveri hennar í emb­ætti þótti stundum nokkuð punt­aður. Hver er hann?

5.  Hver var biskup Íslands á undan núver­andi bisk­upi?

6.  Hvað heitir litla frænka Soffíu frænku í Kar­dimommubæ?

7.  Í hvaða landi er Fumio Kishida for­sæt­is­ráð­herra nú um stundir?

8.  Faxaflói er breið­asti fjörður eða flói lands­ins. En hve breiður er hann frá Arn­ar­stapa á Snæ­fells­nesi og suður á Garð­skaga á Reykja­nesi? Er hann um það bil 47 kíló­metra breiður — 67 kíló­metra — 87 kíló­metra — eða 107 kíló­metra breiður?

9.  Shawshank Redemption heitir vin­sæl kvik­mynd. Hvar ger­ist hún að mestu?

10.  Á vefnum Eldgos.is segir: „Mjög stórt sprengigos varð á svæð­inu fyrir um 10-11.000 árum.  Í kjöl­far þeirrar hrinu seig hluti [fjall­anna] um ca 200 metra.“ Um hvaða eld­stöð er þarna verið að ræða? Og sprengi­stig fæst fyrir að vita hvaða fjöll eru þarna nefnd. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hún er af svip­uðu tagi og sú fyrri. Á mynd­inni hér að neðan má sjá film­stjörn­una Ryan Gosling í hlut­verki sínu í vænt­an­legri bíó­mynd Gretu Gerwig. Í hvaða hlut­verki er Gosling þarna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Grikk­landi.

2.  Napóleon Bonap­arte.

3.  Hún er þýsk.

4.  Juncker.

5.  Karl Sig­ur­björns­son.

6.  Kamilla.

7.  Japan.

8.  87 kíló­metrar.

9.  Í fang­elsi.

10.  Eld­stöðin er Askja. Föllin eru Dyngju­fjöll.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mynd­irnar eru báðar úr sömu vænt­an­legu bíó­mynd­inni, Barbie, og þau Robbie og Gosling leika vita­skuld Barbie og Ken.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár