Réttarhöld hafin í einu stærsta hneykslismáli læknavísindanna sem teygir sig til Íslands

Rétt­ar­höld yfir Paulo Macchiarini, ítalska skurð­lækn­inum sem græddi plast­barka í þrjá sjúk­linga á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Svíþjóð eru hafin þar í landi. Tómas Guð­bjarts­son brjóst­hols­skurð­læknir er vitni ákæru­valds­ins í mál­inu og á að segja frá blekk­ingum Macchiarinis. Plast­barka­málið teng­ist Íslandi með margs konar hætti.

Réttarhöld hafin í einu stærsta hneykslismáli læknavísindanna sem teygir sig til Íslands
Þegar aðgerðin var hyllt Árið 2012 var haldið mál­þing um aðgerð­ina á Andemariam Beyene, fyrsta plast­barka­þeg­ann, í Háskóla Íslands. Þá var sagan um aðgerð­ina þannig að hún hefði heppn­ast vel. Andemariam Beyene sést hér á tali við Paulo Macchiarini í húsa­kynnum Háskóla Íslands en á milli þeirra er starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins sem sá um að fram­leiða plast­bark­ana.

Tómas Guð­bjarts­son brjóst­hols­skurð­læknir á Land­spít­al­anum er eitt af vitn­unum í máli ákæru­vald­is­ins í Svíþjóð gegn ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Rétt­ar­höldin hófust þar í landi í gær. Macchiarini var við­staddur rétt­ar­höldin íklæddur „dökk­bláum jakka­fötum og með hárið í tagli“ sam­kvæmt sænska dag­blað­inu Dagens Nyheter.  

Ákæran gegn Macchiarini var gefin út í Svíþjóð í lok sept­em­ber árið 2020.  Macchiarini neitar því að hafa framið lög­brot. 

Ákærður fyrir þrjár grófar líkamsárásir

Macchiarini er ákærður fyrir grófar lík­ams­árásir fyrir að hafa grætt plast­barka í þrjá sjúk­linga í Svíþjóð. Þetta voru þau Andemariam Beyene, sem búsettur var á Íslandi, Banda­ríkja­mann­inum Christopher Lyles og tyrk­nesku stúlkunni Yeşim Çetirin. Öll dóu þau í kjöl­far aðgerð­anna og virk­uðu plast­bark­arnir aldrei sem skyldi enda höfðu þeir aldrei verið próf­aðir vís­inda­lega á neinum lif­andi verum áður en Macchiarini próf­aði að græða þá í menn. 

Í ákærunni segir  sak­sókn­ar­inn Mikael Björk að brot Macchiarinis hafi verið gróf og að hann hafi valdið sjúk­ling­unum þremur alvar­legu lík­ams­tjóni og miklum kvölum. „Með þessu hefur Paulo Macchiarini sýns af sér ein­stakt til­lits­leysi og kald­lyndi,“ stendur þar. 

Ári eftir aðgerð­inaMálþing um aðgerð­ina á Andemariam var haldið í Háskóla Íslands ári eftir aðgerð­ina, árið 2012. Hann sést hér meðal ann­ars með Paulo Macchiarini og Tómasi Guð­bjarts­syni á mál­þing­inu.

Tengslin við Ísland

Plast­barka­málið er eitt stærsta hneyksl­is­mál nútíma­lækna­vís­inda og hefur það skekið sænskt sam­fé­lag svo um munar á síð­ustu árum. Málið leiddi til þess á sínum tíma að rektor Kar­on­linska-háskól­ans, þar sem Paulo Macchiarini var með rann­sókn­ar­stöðu, sagði af sér og olli málið álits­hnekki fyrir bæði skól­ann og Karol­inska-sjúkra­húsið.

Tvær rann­sókn­ar­skýrslur voru gerðar um málið í Svíþjóð og ein á Íslandi.

Plast­barka­málið teng­ist Íslandi þannig að Andemariam Beyene, fyrsti plast­barka­þeg­inn, var búsettur á Íslandi þar sem hann lagði stund á jarð­fræði. Hann greind­ist með krabba­mein í hálsi á Land­spít­al­anum og fór í aðgerð.

Vorið 2011 var hann sendur til Sví­þjóðar til með­ferðar eftir að krabba­meinið hafði tekið sig upp aftur og læknir hans hér á landi, Tómas Guð­bjarts­son, vildi athuga hvaða með­ferð­ar­úr­ræði væru fyrir hendi í Svíþjóð. Tómas átti svo eftir að taka þátt í aðgerð­inni þar sem plast­bark­inn var græddur í Andemariam auk þess sem hann skrif­aði vís­inda­grein um aðgerða­tækn­ina með Macchiarini og fleiri aðilum. 

Stjarnan Macchiarini

Í ákærunni segir að Tómas muni meðal ann­ars bera vitni um það að Macchiarini hafi haldið upp­lýs­ingum um aðgerða­tækn­ina og virkni hennar leyndum og að hann hafi hafi vitað að hún „virk­aði ekki“. 

„Í mínum kreðsum var hann eins konar Ronaldo“
Tómas Guð­bjarts­son
um Macchiarini

Í vitna­skýrslu yfir Tómasi, sem er hluti af rann­sókn­ar­gögnum í mál­inu, lýsir hann því hvernig það gerð­ist að hann tók þátt í aðgerð­inni með Paulo Macchiarini jafn­vel þó ekki að lægju fyrir neinar sann­anir á því að aðgerða­tæknin virk­aði: Það er að segja að ljóst væri að hægt væri að græða plast­barka í menn með þessum hætti. Meðal  þess sem Tómas segir um Macchiarini í vitna­skýrsluni er hversu hissa hann hefði verið þegar hann átt­aði sig á því að Macchiarni var starf­andi á Karol­inska-sjúkra­hús­inu: „… ég vissi hver Macchiarini var. Ég var ótrú­lega hissa á því að hann væri í Stokk­hólmi. Í mínum kreðsum var hann eins konar Ronaldo.“

Á öðrum stað í vitna­skýrsl­unni segir Tómas að það að fram­kvæma aðgerð­ina á Andemariam með Macchiarini hefði verið eins og að hafa „eins konar Jesúm Krist“ á skurð­stof­unni. 

Lýsingar Tómasar benda því til að það hafi hjálpað Macchiarini mjög að vera stjarna í lækna­heim­inum á þessum tíma og að vegna þessa hafi ekki vaknað eins miklar efa­semdir um hann og aðgerðir hans og hefði átt að vera. 

Auk þess­ara tengsla Tómasar við málið þá var Birgir Jak­obs­son, sem síðar varð land­læknir á Íslandi, for­stjóri Karol­inska sjúkra­húss­ins þegar Paulo Macchiarini var ráð­inn þangað árið 2010. Birgir skrif­aði undir ráðn­ing­ar­samn­ing Macchiarinis á þeim tíma en end­ur­nýj­aði hins vegar ekki samn­ing­inn eftir að ítalski skurð­lækn­ir­inn hafði fram­kvæmt aðgerð­irnar þrjár sem hann er nú ákærður fyrir.  Ástæðan fyrir því að Birgir end­ur­nýj­aði ekki ráðn­ing­ar­samn­ing Macchiarinis í nóv­em­ber 2013 var að skömmu áður hafði verið ákveðið að hann fengi ekki að gera fleiri aðgerðir á spít­al­anum þar sem hann hafði ekki sinnt þessum þremur sjúk­lingum sem skyldi eftir að hann græddi í þá plast­barka. 

Andemariam lést svo nokkrum mán­uðum síðar, í árs­byrjun 2012. 

Ber vitniMehrawit Tefaslase, ekkja Andemariam Beyene, ber vitni gegn Paulo Macchiarini.

 Eiginkonan ber einnig vitni

Annar aðili sem ber vitni í mál­inu gegn Macchiarini er ekkja Andemari­ams Beyene, Mehrawit Tefaslase. Hún bjó með honum á Íslandi ásamt börnum þeirra tveimur.

Mehrawit hefur sagt í vitns­skýrslu sem er hluti af rann­sókn­ar­göngum máls­ins að Macchiarini hafi sagt við Andemariam að hann þyrfti að fara í aðgerð­ina til að lifa af. Þegar Macchiarini sagði þetta við Andemariam hafði aðgerða­tæknin ekki verið prófuð á mönnum eða dýrum. Læknir sem var hluti af rann­sókn­arteymi Macchiarinis um tíma hefur sagt að hann hafi prófað aðgerða­tækn­ina á rottum eftir að plast­bark­inn var græddur í Andemariam. Lækn­ir­inn, Oscar Simonson, hefur sagt að tæknin hafi ekki virkað þegar hún var prófuð á rottum.

Um sann­fær­ing­ar­til­raunir Macchiarinis segir Mehrawit í vitna­skýrsl­unni: „Ég segi frá því sem mað­ur­inn minn sagði við mig og hann tal­aði við þennan lækni [Macchiarini] um aðgerð­ina. Hann sagði við hann að hann hefði ekki notað þessa aðgerða­tækni á mann­eskjum áður og spurði af hverju hann vildi nota hana á sér […] en þessi læknir sagði að það væri öruggt að plast­bark­inn myndi virka í átta til tíu ár og hann sagði líka við mann­inn minn að það væri séns á því að hann gæti fengið að sjá fal­legu börnin sín vaxa úr grasi og það var þess vegna sem mað­ur­inn sagði ok,“ segir hún. 

Eftir að Andemariam lést flutti Mehrawit frá Íslandi til smá­bæjar í Dalarna í Svíþjóð ásamt börnum þeirra. 

Ákæruna í Macchiarini-mál­inu má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Fókusinn í þessum réttarhöldum er, eins og vænta mátti, á starfsemi Macchiarinis á KS, ekki á KI.

    En ekki verður séð að þeirri spurningu sé velt upp hvernig Macchiarini gat framkvæmt þarna ósamþykktar aðgerðir með ósamþykktu plasti og án allra úrskurða frá vísindasiðanefndum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár