Deildi efni til varnar Hitler á TikTok

Framkvæmda­stjóri Bæjarins Beztu segist deila miklu efni á TikTok og að hann muni ekki eftir að hafa deilt mynd­böndum til varnar Þýska­landi nasismans eða með texta um Adolf Hitler: „Hann gerði ekkert rangt“. Deilingar á TikTok séu ekki yfir­lýstar skoðanir.

„Hann gerði ekkert rangt“
„Hann gerði ekk­ert rangt“ Baldur Ingi seg­ist ekki muna eftir að hafa deilt mynd­band­inu.

Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmda­stjóri og einn eigenda Bæjarins Beztu, hefur deilt mynd­böndum á reikningi sínum á samfélags­miðlinum TikTok þar sem gripið er til varnar fyrir Þýskaland nasismans eða Adolf Hitler, leiðtoga Þýska­lands í Seinni heims­styrjöldinni.

Í einu þeirra er textinn „He did nothing wrong“ eða „Hann gerði ekkert rangt“ á skjánum á meðan ræðumaður lofar stefnu Hitlers og Nasista­flokksins í húsnæðis­málum.

Mynd­böndunum deildi Baldur Ingi inn á milli fjölda annarra myndbanda sem hann endur­birti, en sum eru frá Bæjarins beztu, sögufræga pylsu­veitinga­staðnum sem hann rekur, og mörg frá Einni pælingu, hlaðvarps­þáttunum sem Bæjarins beztu styrkja fjárhags­lega.

Bæjarins beztu er þekktur veitinga­staður alþjóð­lega og oft er fjallað um pylsu­vagninn þegar frægir útlendingar heimsækja hann eða bryddað er þar upp á nýjungum. Baldur Ingi kemur reglulega fram í fjöl­miðlum fyrir hönd fyrir­tækisins. 

„Ég endur­birti eiginlega allt saman“

Í samtali við Heimildina segist Baldur Ingi …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    Viðurstyggilegt! Ekki mun ég kaupa pylsu þarna aftur!
    3
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Óttalegt rugl er þetta.
    kannski fyllsta ástæða að kaupa ekki oftar pulsu hjá þessum aðila.
    4
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Sorglegt
    3
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Maðurinn er fífl." sagði félagi minn eitt sinn. Stundum finnst manni það eiga vel við.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár